Miðstöð foreldra og barna sérhæfir sig í meðferð fyrir verðandi foreldra og með börn að eins árs aldri. Meðferðin byggir á kenningum sálgreiningar, tengslakenningu og rannsóknum í taugavísindum. Auk þess er stuðst við hugræna atferlismeðferð, djúpslökun og í völdum tilvikum er boðið upp á heimavitjanir. Áherslan beinist að tengslunum á milli foreldra og barns og því taka þau öll þátt í meðferðartímunum ef kostur er, annars annað foreldranna. Markmið meðferðar er að efla getu foreldra til að mynda tengsl við börn sín og styrkja þá í foreldrahlutverkinu á viðkvæmustu mótunarárum barnanna.
Don't wanna be here? Send us removal request.
Link
Hér má sjá viðbrögð nýbura og tengslamyndun við föður sinn, rétt eftir fæðingu:
0 notes
Video
youtube
Í myndbandinu er skoðuð tengsl barns og móður. Barnið grætur og sýnir streitu þegar móðirin yfirgefur herbergið.
0 notes
Text
Áhrif hormóna á tengslamyndun, traust og streitu.
Sigríður Ólafsdóttir líffræðingur hélt erindi um áhrif hormóna á tengslamyndun, traust og streitu. Sigríður hefur sérstakan áhuga á hormóninu oxytósin, sem virðist vera að vekja áhuga margra sérfræðinga á ýmsum sviðum líffærðinnar og sálfræðinnar.
Oxytósin er hormón sem tengist fæðingu barns, brjóstagjöf og ummönnun. Það eykst í líkamanum við fæðingu barns og við brjóstagjöf. Það er einnig talið aukast við tengslamyndun og ummönnun nýfædds barns. Því hafa sérfræðingar á Miðstöð foreldra og barna sérstakan áhuga á þessu hormóni og hvernig það starfar. Áhuginn á þessu hormóni vaknaði fyrir um 20 árum síðan, og síðan þá hafa rannsóknir á þessu sviði aukist til muna.

0 notes