Hæ! Þetta er hjá Gísla Marteini. Ég er því miður ekki við, en hér á Tumblernum mínum er alls konar dót sem mér er hugleikið. Ég er líka á Twitter og Facebook og sendi vikulegt fréttabréf. Nei?
Don't wanna be here? Send us removal request.
Photo

Fariði nú rakleiðis inn á unwomen punktur is og kaupið ykkur svona húfu og leggið baráttu gegn kynbundnu ofbeldi lið. #fokkofbeldi
1 note
·
View note
Photo

Þá hefur Hagaskóli Íslands lokið keppni í lífi þessarar fjölskyldu. Vigdís Freyja útskrifaðist með bravúr í dag. En skólinn mun alltaf eiga pláss í ❤️❤️ okkar. (at Háskólabíó)
0 notes
Photo

Þetta stórfurðulega NATO minnismerki minnir mig alltaf á ananas. Þegar við göngum úr NATO getum við gullhúðað þetta sem tákn um 2017 góðærið þegar allir fóru að kaupa sér gull-ananas inn í stofu. 🍍😂🍍😂🍍 (at Hótel Saga)
1 note
·
View note
Photo

Tryllt stemning á @kaffihusvesturbaejar á Airwaves! (at Kaffihús Vesturbæjar)
0 notes
Photo

Við Lára samstarfskona mín erum til í þessar kosningar. Allir að kjósa í dag!
0 notes
Photo

Bústaður tengdaforeldra minna brann til kaldra kola í vor, eftir að það kviknaði í útfrá rafmagns-heitapottinum. En lundurinn er enn jafn fagur, uppbygging nýs bústaðar er á fullu og það var dásamlegur haustdagur í byggingarvinnu í Skorradalnum í dag. (at Skorradalsvatn)
0 notes
Photo

Hér stöndum við skötuhjúin á dásamlegu fimmtudagskvöldi í Reykjavík. Á þessu götuhorni má sjá margt sem er að gerast gott í borginni okkar. Verslunin @hyalin_reykjavik er þarna fyrir aftan - frábær frönsk sælkerabúð sem býður upp á persónulega þjónustu og dásamlegar vörur. Við stöndum á Hverfisgötunni sem tekin var í gegn og endurhönnuð með þeim árangri að hún fór úr því að vera glötuð í að vera geggjuð, með búðum, börum og kaffihúsum sem spruttu upp eftir að almenningsrýmin voru bætt, bílastæðum fækkað og gatan mjókkuð. Og svo má sjá hjólamerkið á hjólastígnum fyrir aftan okkur hjónin, sem allt gott fólk gleðst yfir! Góðir hlutir að gerast og það þarf gott fólk til að berjast fyrir þeim, því það vantar aldrei að úrtölufólkið sem vill meiri mengun, fleiri bíla og verri borg mun berjast gegn þeim. 🚲❤️ #aðförin (at HYALIN Reykjavík)
0 notes
Photo

Þetta haust er að slá í gegn hjá okkur Tinna. Langir göngutúrar í fuglasöng og reyniberjum. 🍂🍃 (at Melhagi)
0 notes
Photo

Leiðinlegt að sjá þessi skemmdarverk á kosningabaráttu Sigmundar Davíðs. Ekki málefnalegt! Sad.
0 notes
Photo

Þessir haustdagar eru dásamlegir. 🍂🍁🍃🍂 (at Kaffihús Vesturbæjar)
0 notes
Photo

Aftur í Berlín með góðu fólki. Erum á slóðum Múrsins og kalda stríðsins. Þriðja-ríkis skoðunarferð seinna í dag. (at Mauerstraße)
0 notes
Photo

Við erum bara að slagga og njódda haustsins. 🐶🍃🍂 (at Vesturbæjarlaug)
0 notes
Photo

Skrifstofa dagsins er hinn aflagði Tempelhof flugvöllur í Berlín. Var að taka upp texta fyrir Rás 1 og skoða í leiðinni þennan almenningsgarð sem í áratugi var einn sögufrægasti flugvöllur heims. Svo var honum bara lokað. Það gerist. (at Berlin Tempelhof Airport)
0 notes
Photo

Með góðu fólki á góðum fararskjótum í góðri borg. ❤️👫🚲🇩🇪 (at Tiergarten)
0 notes
Photo

Stöðvið prentvélarnar! Það er hundur inni á kaffihúsi í Brussel! Engin merki um bráðaofnæmisköst og þeir sem eru hræddir við hunda láta hann eiga sig eða fara annað. (Vel gert @bjortolafs ) ❤️🐶 (at OR Espresso Bar Brussel)
0 notes
Photo

Var að vaska upp bollann minn í vinnunni þegar ég áttaði mig á að þessi danski uppþvottabursti var að reyna að auglýsa þáttinn minn. (Við byrjum 13. okt). (at RÚV)
0 notes