Don't wanna be here? Send us removal request.
Text
Dreka beinagrind. KLÁRAÐ
Þá er drekinn enn tilbúnari en hann var síðast, ég er búinn að pússa allar brúnir, gera þær sléttar og svo lakkaði ég og sprey málaði hann.

Það er ekki mikið meira að segja sem ég hef ekki þegar sagt nema bara að ég er mjög ánægður með hvernig hann endaði og það er frábært að fá að sjá lokaniðurstöðuna á þessu heil-langa verkefni.
0 notes
Text
Lítið skrítið hús
Sem kynningu í Google Sketch up gerðum við lítið hús og prentuðum það út í 3d prentaranum. Svona standard hús eru frekar einföld, þó ég hafi bætt svolítið af drasli eins og tröppum og gluggum á mitt, það er í raun bara að gera kassa, hækka hann upp og hækka þakið. Hurðin, tröppurnar, auka hækkanir í þakinu, þak skegg og gluggar voru aðalega bara föndur og þarf bara að sjá til að allt passi saman og að það séu engin göt.
Þegar allt var sett til að 3d prentarinn gæti klárað verkið. Húsið kom samt ekki allveg fullkomið úr prentaranum, Prentarinn hefur líklega bara klúðrað aðeins staðsetningunni og farið aðeins til hliðar en það er ekki það versta í heiminum.

0 notes
Text
Pandora’s Box
Fyrir stóra samsetningar verkefnið mitt gerði ég kassa, ekki hvaða kassa sem er heldur gerði ég eftirlíkingu af Pandóru boxinu. Pandóru boxið sleppti öllu slæmu; sjúkdómum, stríðum, glæpum og öllu mögulegu.
Ferlið var þannig að ég teiknaði upp 6 ferninga og bjó til hök í þau svo að þau passi öll saman og lét lazer prentarann gera rest.

Þegar allt var komið úr prentaranum voru hökin mjög laus saman svo að ég límdi saman allt nema lokið svo ég geti opnað og lokað kassann.
0 notes
Text
Marglita límmiðar
Þá er komið að því að gera límiða í mysmunandi litum og setja þá saman og gera þá marglita límmiða.
Það sem ég ákvað að gera að marglita límmiðum voru ‘The four horsemen of the apocalypse’ úr heimsenda spá biblíunnar.

Ferlið fól í sér að fynna myndir til að nota í límmiðana; hesta hausa vopnin fyrir hvern þeirra, og setti þær svo saman svo að þeir passi vel saman. Svona er kom það út
Næst var að prenta út hvern límmiða og setja þá saman.

Ég hef ekki enn fundið stað fyrir þessa límmiða svo þeir sitja bara ofan á borðinu mínu bakvið hljómborðið og eru ekki að gera sérstaklega mikið.
0 notes
Text
Framfara skýsla: Drekinn
Þá er... nokkuð langt síðan drekinn hefur komið fram á þessu bloggi svo að þetta verður bara extra löng færsla.
Drekinn er kominn í heiminn!! teikningarnar eru búnar að fara í fræsarann og fræsarinn er búinn að skera drekann út.
Það fyrsta sem ég þurfti að gera til að ná því var að velja efni, ég valdi 9 mm MDF, fann góða plötu og lagaði Inkscape skjalið svo að allt myndi passa á plötuna. Það var aðeinst búið að skera í plötuna svo ég þurfti að gera grein fyrir því í Inkscape skjalinu svo ég stillti stærðina rétt fyir stæðsta notanlega hlutann af plötunni og setti þríhyrning til að tákna það sem hafði verið skorið frá.
Eins og sést hér komust vængirnir ekki fyrir á plötunni svo ég þurfti að fynna aðra plötu fyrir þá og ákvað að nota 6 mm plötu í þá svo að þeir myndu ekki vera of þungir.
Punktarnir tákna göt á plötunni sem ég forðaðist að vængirnir kæmu á.
Þá var bara að leifa fræsaranum að vinna restina af þessu verkinu, setja allt saman og þá var kominn dreki.

Þá er bara eftir að setja smá loka hönd á verkið og þá verður allt í sómanum.
0 notes
Text
Gler Verkefni
Fyrir gler verkernið mitt rasteraði ég Pearl Jam merkið í sultu krukku til að gera hana að Perlu-sultu krukku. Hugmyndin kom frá myndar gátu sem sýndi fullt af hljómsveita nöfnum í myndar formi, t.d. Alice in Chains, Soundgarder, Smashing Pumpkins og Nine Inch Nails.

Peal Jam er með mikið af merkjum til að velja úr því þeir virðast ekki vilja nota láta nafnið sitt líta út á plötunum sínum, svo ég þurfti að velja það sem mér fannst henta best fyrir sultu krukku. Til að koma í veg fyrir rugling fannst mér ég þurfa að taka fram að það séu engar perlur í sultunni svo ég bætti við smáu letri.
Þá var letrið komið á sultu krukkuna og allt var í rauninni klárt, en mér leyst ekki á litinn og letrið á lokinu, það var svolítið tuflandi fannst mér. Það sem ég gerði í því var að ég tók hníf og skóf málninguna af lokinu þannig að það var bara eftir lituninn af málminum sjálfum. Það er öruglega til betri leið til að gera sama hlut of kanski fá betru niðurstöðu, en ég gerði það sem mér fannst hentugast með verkfærin sem ég hafði við hönd.
Hér er síðan loka niðurstaðan, að er mjög erfitt að sjá smáa letrið en það gerir að bara meira eins og allvöru smátt letur.

0 notes
Text
Tilraunar verkefni: Brennisteinn
Þegar ég var búinn með bollann og armbandið var ég orðinn frekar þurr á hugmyndum. Þangað til Jóhann sagði að ég ætti að rasta á spjaldtölvu hulstrið hans. Þá fór ég að henda hugmyndum í hann um hvað hann vildi fá á hulstrið, þegar ég stakk upp á brennisteins merkinu fannst honum það æðislegt.
Þetta var mjög einfalt ferli, setja myndina í Inkscape, trace bitmap, rasta.

0 notes
Text
Tilraunar verkefni: British Steel
Annað tilraunar verkefnið sem ég gerði var leður armband með mynd af rakvélarblaðinu af plötu list Judas Priest plötunnar; British Steel.

Það fyrsta sem ég gerði var að fynna góða mynd, sem var ekki með fingrum og skuggum fyrir mér. næst fann ég góða mynd af tvíeggja rakvélarblaði, tók út það sem ég þurfti ekki og setti myndirnar saman.
Þegar var búið að rastera og skera leðrið notaði ég hvítan vatnslit til að draga út það sem ég hafði rasterað.

0 notes
Text
Tilraunar verkefni: Bolli
Fyrsta efnið sem ég rasteraði í sem tilraun var gler, nánar til tekið, í bolla.
Það sem ég rasteraði síðan í bollann var andlits mynd af Grog Strongjaw, og hann er með eina spurningu og aðeins eina spurningu; Ale?
Ég fékk náði þessu saman með því að taka eina mynd af Grog af netinu til að ná andlits tattúunum og augunum hans, en sú mynd var ekki með skegginu svo ég þurfti að ná því sér og raða þeim síðan saman.
Þegar búið var að raða öllu saman og rasta það síðan, setti ég svarta málningu yfir bollann svo að málningun hélst þar sem hafði verið rastað en fór strax af heila glerungnum.

0 notes
Text
Dreki. Prótótípa
Hér er komin prótítípa fyrir drekann sem ég stefni á að gera sem smelluverkefni í timbur fræsaranum.

Hann er að mestu góður en það eru þó nokkrur hlutir sem þarf að laga til.
Fyrsti hluturinn sem ég tók eftir er það að rifbeinin eru frekar laus á svo ég þarf að dýpka hökin fyrir þeim. Auk þess eru fremstu rifbeinin, sem axlirnar eru á, eru heldur hærra sett en hin.
Annar hlutur er það að afturfæturnir eru of þunnir við öklana svo að þeir brotnuðu báðir.
Hann er líka frekar herðarbreiður en það er ekki endilega stórmál.
Annars er hann bara í afskaplega góðum málum, þá er bara að laga þessa hluti aðeins til og stækka svo allt heila klabbið svo að það sé í góðu hlutfalli við þykkt tibursins.
0 notes
Text
Smellu kallar
Nú er ég búinn að gera litla kalla sem smellast saman og standa og eru æðislegir.

Ferlið snerist út á það að búa til hvern útlim fyrir sig og síðan fá þá til að smella saman, Herramaðurinn lengst til vinsti var einfaldastur, enda eru hann með fæsta hluta. Sá erfiðasti var svartadauða læknirinn í miðjunni því að hausinn á honum smellist saman auk þess að smellast við hálsinn. Ég þurfti þá að skera pláss fyrir hálsunum á þann hátt að báðir hlutarnir af hausnum gætu smellst saman og að þeir tveir hlutar gætu saman smellst á hálsinn. Pönkarinn lengst til hægri var ekki flókinn en hann er með mysmunandi hendur svo ég get skipt höndunum hans út þannig að þær passi fyrir mysmunandi tilfelli.
0 notes
Text
Lyklakippa
Þá er lyklakippan tilbúin og mér finnst hún hafa komið ágætlega út. Ég fann enga virkilega góða mynd af því sem ég vildi fá svo að þetta var sú skársta sem ég fann.

Ég þurfti þá að laga hana heldur mikið til, ég byrjaði á því að nota Edge detection í trace bitmap því að útlínurnar í þessu eru mun skýrari heldur en litamunurinn. ´þegar það var búið voru auðvitað punktar úti um allt því forritið túlkaði mikið af hlutum sem útlínur sem voru alls ekki útlínur, svo ég þurfti að eyða þeim og laga til þær línur sem voru til staðar því þær voru ekki allar réttar.

Eina sem fór virkilega úrskeyðis er það að gatið fyrir lyklakippu hringinn var með allt of þunnar brúnir svo að það þolir ekki neitt álag, en annars kom rasteringin þokkalega vel út
0 notes
Text
Nú er komið að því að gera verkefni í viðarfræsaranum. Verkefnið sem ég ákvað að gera er smelluverkefni sem mun vonandi virka sem beinagrind af dreka.
0 notes
Text
Stensl: Vikki Hristuhaus
Það sem ég ákvað að gera að stensli á bol var merki Megadeth sem er þekktur sem Vic Rattlehead.

Hér er myndin sem ég tók af netinu og lagaði til.


Hér er síðan loka niðurstaðan.
0 notes
Text
20 hliða teningur. KLÁRAÐ
Þá er 20 hliða teningurinn minn tilbúinn og kominn í hendurnar á mér. Það sem ég hafði mestar áhyggjur á var það að hann væri ekki jafn þungur á allar hliðar og sumar tölur myndu koma oftar en aðrar, hvort sem það henti betur eða verr, en svo virðist ekki vera, ég hef kastað honum nokkuð oft og hver tala virðist hafa komið jafn oft upp.

0 notes
Text
Límmiði
Fyrsta verkefni mitt í fyrsta fablab áfanganum er límiði með þremur hnífum á hring sem ég setti aftan á símann minn. Hér er mynd:

0 notes
Text
20 Hliða teningingur
Hér er hvað komið af fyrsta verkefninu mínu í FabLab2 áfanganum hjá mér og eins og titillinn gefur í skin er það 20 hliða teningur.
Hér er myndbandið sem sýnir hvernig þessi teningur er gerður.
0 notes