Tumgik
laglegt · 28 days
Text
hælsæri á fætinum
það er svo sárt
að ganga' í nýjum fótsporum
í allt aðra átt
mér svíður í hendurnar
ég hélt allt og fast
í spjótið og stjörnurnar
sem gerðu ekkert gagn
ég vil ekki fórna mér
fyrir þann sem ég þekkti vel
örin hittir beint í mark
nú blæðir úr báðum hælum
þú vissir hvar þú áttir að miða
ég held að ég skilji loksins akkílles
ég sýndi þér minn veikasta stað
og þú sagðir að þú vildir aldrei meiða mig
en í hælinn þú skaust
2 notes · View notes
laglegt · 1 month
Text
Tumblr media
4 notes · View notes
laglegt · 1 month
Text
Tumblr media
3 notes · View notes
laglegt · 2 months
Text
ég hermi eftir snertingum þínum
bara sammt með mínum egin höndum
en mínar hendur líkjast ekkert þínum
ég held sammt í mig sjálfa líkt og þú
öll þau svör sem ég mun aldrei fá að heyra
og hliðar sem ég aldrei fékk að sjá
en tíminn gengur ekki neitt tilbaka
þó mér finnst þú líta á mig eins og þá
allt sem var og ekki var
þessi á rennur til sjávar
ég geymi allan sjóinn bakvið augun
hann svellir sig við augasteina bakka
og þegar það er ekki lengur fjara
hann flæðir allur niður mína vanga
allt sem var og ekki var
þessi á rennur til sjávar
allt sem var og ekki var
þessi á rennur til sjávar
10 notes · View notes
laglegt · 2 months
Text
teygist tíminn ekkert áfram í þína átt?
teygist tíminn ekkert áfram í þína átt?
ný er nóttin en mig dreymir sama draum
liggjum saman, allt er eins og það var
nema tárin sem þú spyrð mig hví ég felli
svara engu því þetta' ert ekki þú
margir dagar sem að týnast í tárum
tíminn líður en ég stend ennþá stjörf
sömu draumar sömu andlit sama þú
horfir á mig nýjum augum saknar ekki
geymdu mig í huga þínum
ég geymi þig í hjarta mínu
geymdu mig í huga þínum
ég geymi þig í hjarta mínu
(því þú gast ekki elskað mig
því þú gast ekki elskað)
gengur áfram horfir ekkert til baka
bara vinur sem að allt of mikið sá
allt var ósagt sem að núna þarf að segja
lít' í burtu, kaldar hendur, sakna' í hljóði
teygist tíminn ekkert áfram í þína átt?
teygist tíminn ekkert áfram í þína átt?
geymdu mig í huga þínum
ég geymi þig í hjarta mínu
geymdu mig í huga þínum
ég geymi þig í hjarta mínu
teygist tíminn ekkert áfram í þína átt?
teygist tíminn ekkert áfram í þína átt?
geymdu mig í huga þínum
ég geymi þig í hjarta mínu
geymdu mig í huga þínum
ég geymi þig í hjarta mínu
9 notes · View notes
laglegt · 2 months
Text
þú talar ennþá við mig inní huganum á mér
bara eitthvað atvik sem að enginn lengur sér
situr inní mér
einusinni varst þú mitt hjarta' og öll mín sál
nú situr bara eftir og býrð til vandamál
þerrar engin tár
það snertir mig í sárið
það blæðir ekkert blóð
það tæmir engin tóm
það snertir mig í sárið
það blæðir ekkert blóð
það tæmir engin tóm
mannst þú eftir mér
ég man eftir þér
leita' að þér í öllum sem ég tel mig þekkja vel
sé hvort að ég treysti mér til að treysta þeim
enda alltaf ein
það snertir mig í sárið
það blæðir ekkert blóð
það tæmir engin tóm
það snertir mig í sárið
það blæðir ekkert blóð
það tæmir engin tóm
ég felli engin tár
það græðir engin sár
að hugsa' um liðin ár
það blæðir ekkert blóð
það tæmir engin tóm
það blæðir ekkert blóð
tæmir engin tóm
blæðir ekkert blóð
4 notes · View notes
laglegt · 2 months
Text
fyrsti kossinn yljar mér alltaf að innan
hendur um vanga hennar ég tek hana' alla inn
heimurinn snýst í hundrað hringi hana' í kring
hún horfir á mig og ég finn ei fyrir þyngd
já hún stella mín skærust skín
já hún stella mín skærust skín
er hún er HJÁ mér finn ég hendur mínar dofna
hún situr MEÐ mér þangað til ég loksins sofna
(ég víxlaði óvart)
á milli handa hennar er ljós sem ávallt skín
ég sé allt óskýrt nema augun þín og mín
já hún stella mín skærust skín
já hún stella mín skærust skín
instrumental
já hún stella mín skærust skín
já hún stella mín skærust skín
já hún stella mín skærust skín
já hún stella mín skærust skín
3 notes · View notes
laglegt · 2 months
Text
Tumblr media
5 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
Tumblr media
2 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
Tumblr media
3 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
Tumblr media
2 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
Tumblr media
4 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
Tumblr media
2 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
hugsa hundrað sinnum
um tíma löngu liðna
enda alltaf aftur
með sömu hugsanirnar
hver varst þú á undan mér?
hefði ég endað hér?
safna öllum sögum
af þér úr fyrra lífi
hugsa hvort ég myndi
passa inn í þær
hver varst þú á undan mér?
hefði ég endað hér?
ég mun aldrei geta
snúið tímans höndum
liðnar eru stundir
ég þráði um að lifa
en öfundssýkin brennir
á sálu mína stimpil (/og sálu mína blekkir)
ég trúi að ég hefði
aldrei getað þekkt þig
hver varst þú á undan mér?
hefði ég endað hér?
3 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
fallin frá er von um þrá
nú vetur vex og verkar í hjarta stað
eins og vorið er af vetri komið
ég hníg til svefns og rís að morgni
öllu gleymt í huga mér
alveg eins og ekkert hafi skeð
allt er geymt í hjarta hér
alveg eins og ekkert hafi skeð
holdi haldin þó hugur fer
öllu gleymt í huga mér
alveg eins og ekkert hafi skeð
allt er geymt í hjarta hér
alveg eins og ekkert hafi skeð
holdi haldin þó hugur fer
hjartað grafið í hvíta mjöll
2 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
nú stormur gengur yfir
og þú slepptir af mér taki
segir ekkert við mig
sem gæti leitt mig til þín
ég stend í sömu sporum
sem þú skildir mig eftir í
reyni' að ganga áfrám
en hræðist hvert ég fer þá
finndu mig að sumri
geislum umvafin
finndu mig þegar vetri er lokið
var það eitthvað sem ég gerði?
þegar haustið varð að vetri
ég vissi ekki betur
og það skipti engu máli
finndu mig að sumri
geislum umvafin
finndu mig þegar vetri er lokið
þá munt þú sjá mig
í fullum blóma
og óska' að þú hefðir aldrei slept mér
finndu mig að sumri
þá munt þú sjá mig
geislum umvafin vetri er lokið
6 notes · View notes
laglegt · 3 months
Text
Tumblr media
2 notes · View notes