sigurbjorgs-blog
sigurbjorgs-blog
Didda
41 posts
Heilshugar..
Don't wanna be here? Send us removal request.
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Hafraklattar
Mér finnst voðalega gott að fá mér hafraklatta og baka ég oft stórar uppskriftir til þess að eiga inn í frysti! Ég hef prófað margar uppskriftir en fann loksins þá fullkomnu. Hana fann ég á heilsupressunni en breytti örlítið. Það þarf ekki að baka þessa hafraklatta heldur einungis að kæla sem mér finnst mjög skemmtileg tilbreyting. Upplagt að eiga þessa til í frystinum og geta tekið með sér í skólann eða vinnu :)
         Uppskrift: 1 bolli haframjöl ½ bolli kókosmjöl ½ bolli sólblómafræ og/eða chiafræ ¼ bolli gróft spelt ¼ bolli hakkaðar möndlur ½ bolli niðurskornar aprikósur ½ bolli niðurskornar döðlur 2½ msk akasíu hunang  3½ msk kókosolía 1 tsk vanilludropar ½ tsk salt
Aðferð: Byrjið á því að hræra saman öllum þurrefnunum í skál. Setjið döðlur, apríkósur, hunang, kókosmjöl og vanilludropa svo saman í pott og hrærið saman þangað til döðlurnar og apríkósurnar eru farnar að bráðna saman við hunangsblönduna og blandan farin að bubbla. Takið þá pottinn af hita og setjið þurrefnin ofan í hunangspottinn og blandið vel saman. Mér finnst svo best að setja smjörpappír í form og þjappa blöndunni vel þar ofan í svo hún haldist vel saman. Setjið svo inn í ísskáp þar til blandan kólnar vel og skerið svo í litla bita :)
-Njótið vel :)!
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Kókos-karrý kjúklingur
Þá er sumarið að klárast (þó það skíni enn sól hérna í Lúx) og maður er komin í aðeins meiri rútínu enda skólinn byrjaður aftur. Ég hef ekki skrifað mikið hingað inn upp á síðkastið enda bara búin að vera að njóta mín í góða veðrinu síðustu vikur og gleymt mér aðeins. En ég prófaði þennan Kókos-karrý kjúklingarétt um daginn og kom hann mér og kærastanum mínum mjög á óvart. Það er bæði auðvelt að matreiða hann, fer vel í maga og er alveg ótrúlega góður :)! Það er upplagt að hafa þennan rétt þegar maður bíður í mat eða bara langar í eitthvað gott að borða. 
Uppskrift: 3- 4 kjúklingabringur 
 2 msk kókosolía
 ½ laukur
 Grænmeti, ég notaði gulrót, hálfa papriku, 3 sveppi (eða bara það grænmeti sem ykkur finnst gott/eða eigið til)
 2 tsk karrý
 1 dós kókosmjólk (200 - 300 ml)
 1 sætt epli  Dass af salt og pipar
Aðferð: Byrjið á því að skera kjúklinginn í litla bita og setjið hann á pönnu með kókosolíu. Leyfið kjúklingnum að brúnast aðeins og bætið svo við grænmetinu. Kryddið svo með salti, pipar og karrý. Hellið kókosmjólkinni þar af eftir út á og smátt skornum eplabitum. Látið malla í nokkrar mínútur og voila! 
Mæli með að hafa hrísgrjón, sætar kartöflur og ferskt grænmeti með :)
        -Þið verðið bara að prófa þennan :)!
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Eggjamúffur
Í morgun gerði ég eggjamúffur þar sem ég átti til svo mikið af eggjum. Ég fann nokkrar uppskriftir á netinu sem ég notaði sem grunn. Ég borðaði svo tvær með hafragrautnum í morgun með bestu lyst! 
Það er tilvalið að eiga nokkrar eggjamúffur í ískápnum til þess að grípa með sér í vinnuna eða skólann. Annars held ég að eggjamúffur séu ágætis viðbót á brunch borðið og ætla ég hiklaust að hafa eggjamúffur í næsta boði :)
        Uppskrift:  gerir u.þ.b. 10 múffur 6 egg 2 msk gróft spelt 1 tsk lyftiduft 1 dl sojamjólk  ½ paprika góð lúka af spínati rifið gróflega  ca. 5 sólþurrkaðir tómatar Dass af salt og pipar (Auðvitað getið þið svo bara sett hvað sem ykkur dettur í hug í múffurnar. T.d sveppi, lauk, kúrbít, gulrætur).
Aðferð: Hrærið allt vel saman og hellið svo í sílíkon muffinsform. Bakist við 180 gráður í ca. 30 mín.
-Verði ykkur að góðu :)
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Grænmetisbaka
Ég hef aldrei verið mikil kjötmanneskja og síðustu árin hef ég varla snert annað kjöt en kjúkling. Ég borða þá reyndar nánast einungis bringur en ég er eiginlega komin með leið á þeim. Þar af leiðandi hef ég verið duglegri í grænmetiseldamennskunni og er að elska það. Mér hefur loksins tekist að setja saman í fullkomna (að mínu mati) grænmetisböku uppskrift. Auðvitað setjið þið svo bara það grænmeti sem ykkur þykir gott eða eigið til, ég geri þetta sjaldnast eins.  Mér finnst alveg rosalega gott að gera stóra uppskrift af þessu og skera afganginn í sneiðar og geyma í frystinum. Mjög gott til þess að taka með sér í vinnuna eða bara eiga þegar maður nennir ekki að elda.
Uppskrift: Botninn: 2 dl fínt spelt 2 dl gróft spelt 1 dl haframjöl 50 gr smjörlíki ca. 1½ dl ískalt vatn Aðferð: Blandið þurrefnunum og smjörlíki saman með höndunum þangað til smjörteningarnir eru vel blandaðir við speltið og bætið vatninu þar á eftir út í. Geymið deigið inn í ískáp í u.þ.b. 30 mín, eða á meðan þið gerið fyllinguna tilbúna. Fletjið svo deigið út og setjið eldfast mót sem er smurt með smá ólífuolíu. Stingið deigið út um allt með gaffli og forbakið botninn í 10 mín.
Fylling:  ⅓ sæt kartafla (eða hálf lítil) 1 stór gulrót ½ kúrbítur 3 sveppir ½ paprika smá brokkolí Lúka af spínati ½ laukur 2 hvítlauksrif Aðferð: Steikið grænmetið á pönnu upp úr kókos- eða ólífolíu og leyfið að malla í um 20 mín. Ég set fyrst sætu kartöfluna og gulrótina því það þarf lengstan tíma. Ég kryddaði grænmetið með oregano.
Sósan:  5 egg 3 msk sojamjólk ½ grænmetisteningur 50 gr ostur Dass af salt og pipar Aðferð: Hrærið þessu öllu vel saman og bætið svo steiktu grænmetinu út í skálina. Þar á eftir skulið þið hella blöndunni á brauðbotninn og setja rifinn ost yfir. Bakist við 200 gráður í 35 mín.
           -Njótið vel :)
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Pönnukökur og kasjúhneturjómi
Þar sem sólin er loksins farin að láta sjá sig hér í Lúx hafði ég smá sunnudagsbröns í gær úti í sólinni. Ég gerði ótrúlega gott túnfisksalat sem ég fann uppskrift af á þessari fínu síðu; www.evalaufeykjaran.com og mæli hiklaust með að þið prufið :).
Annars henti ég í pönnsur og meðþví sem heppnaðist svona líka vel. Ég prófaði að gera kasjúhneturjóma í fyrsta skipti og var mjög ánægð með hann. Á pönnukökurnar setti ég svo kasjúhneturjómann, ber og banana, hnetukurl og smá kókosmjöl, lang besta blandan!
Pönnukökur- Uppskrift: 300 g fínmalað spelt 1 msk lyftiduft 1 ½ tsk vanilludropar 2 egg 500 ml sojamjólk 2 tsk agavesíróp 1 msk kókosolía
Aðferð: Setjið spelt og lyftiduft saman í stóra skál. Í annarri skál skuluð þið hræra saman eggjum, vanilludropum, sojamjólk og agavesírópi. Hellið svo varlega yfir í stóru skálina og hrærið vel alla kekkina úr. Bætið svo kókosolíunni saman við og meiri mjólk ef þess þarf. Berið örlítið af kókosolíu á pönnuna og setjið u.þ.b eina ausu af deigi á pönnuna í einu. 
Kasjúhneturjómi- Uppskrift: ½ bolli kasjúhnetur (lagaðar í bleyti í 30 mín) ½ bolli vatn 4 döðlur (lagðar í bleyti í 30 mín)
Aðferð: Blandið hnetum og vatni saman í blandara þar til slétt. Bætið döðlunum svo út í. Stoppið blandarann nokkrum sinnum og notið sleikju til að taka rjóman af börmunum á blandarnum á meðan verið að er að blanda. Rjóminn á að vera sléttur og rjómakenndur þegar hann er tilbúinn. Kælið svo inni í ískáp :)
       -Þetta er eitthvað sem þið verðið að prófa gera á góðum sumardegi :)!
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Flutningar og bloggleysi
Afsakið bloggleysið. Þar sem ég er flutt til útlanda og er búin að vera að ferðast og leika mér er lítið um nýjar færslur hér á síðunni. Einnig er ég að læra á hvað þessar vörur sem ég kaupi heima heita á frönsku/þýsku og reyna að finna þær inni í þessum risa matvöruverslunum. Ég kem vonandi með eitthvað sumarlegt blogg á næstunni. 
                 -þangað til næst!
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Kanilsnúðar
Á rigningardegi eins og þessum finnst mér fátt betra en að vera inni og baka. Ég henti í kanilsnúða en uppskriftina fékk ég í bókinni hennar Ebbu; hvað á ég að gefa barninu mínu að borða. Þeir eru alveg þvílíkt góðir og ekki skemmir fyrir að þetta er einföld og fljótleg uppskrift :)!
Uppskrift: 200 gr fínt spelt 160 gr gróft spelt  4 tsk vínsteinslyftiduft 1 tsk salt ½ dl agavesýróp 1½ msk olífuolía 1½ - 2 dl hrísgrjónamjólk
Aðferð: Þurrefnunum blandað saman og svo hinu bætt við. Hnoðið svo deigið flatt út frekar þunnt og stráið kanilsykri yfir. Hitið í ofni í 12- 20 mín.
-Njótið vel!
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Kornfleks kjúklingur
Þessi réttur finnst mér óskaplega góður enda er ég mikið fyrir ,,chruncy'' mat. Ég hef oft rekist á einhverskonar kornfleks kjúklinga uppskriftir en engin þeirra hentaði mínum sérþörfum svo ég prófaði mig bara áfram og er mjög sátt með útkomuna :)
Það passar mjög vel að hafa einhverskonar jógúrts- eða sinnepssósu með þessu eða einfaldlega bara sýrðan rjóma!
Uppskrift: 3 kjúklingabringur 2 egg 1 dl bókhveiti 2 1/2 dl glútenlaust kornfleks 1 tsk paprikukrydd (ekki nauðsynlegt) Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:  Byrjið á því að setja kornfleksið í poka og mylja það. Setjið svo mulda kornfleksið og bókhveiti saman í skál og kryddið eftir smekk. Takið eggin og setjið í aðra skál og hrærið. Skerið kjúklingabringurnar í strimla og kryddið með kjúklingakryddi. Veltið kjúklingastrimlunum svo fyrst upp úr eggjahrærunni og svo bókhveitinu og kornfleksinu. Setjið kjúklinginn í eldfast mót og inn í ofn í ca. 45-50 mín við 200 gráður.
       -Njótið vel :)!
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Sumarið er tíminn
Á sumrin er gott að fá sér létta máltíð eins og til dæmis kjúklingasalat. Það nýjasta hjá mér er að saxa niður kasjúhnetur og setja út á salatið og finnst mér það breyta miklu! Elska líka að setja ber, melónur, rúsínur eða eitthvað annað sætt út á salatið. 
        Það er líka svo ljúft að gera sér safa á sumrin og þá sérstaklega þegar veðrið er gott! Ég á ég mér nokkra uppáhalds sem ég deili kannski með ykkur á næstunni :)
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Sætkartöfluhummus
Um síðustu helgi fór ég og kæró í mat til vinapars okkar þar sem sætkartöfluhummus var meðal þeirra kræsinga sem í boði voru og hef ég ekki getað hugsað um neitt annað síðan! Ég er mjög hrifin af bæði hummus og sætum kartöflum svo þessi blanda gat hreinlega ekki klikkað! Mér finnst passa að hafa þetta með svo mörgu t.d. hrökkbrauði og grænmeti, kjúkling og svo prófaði ég að hafa þetta á vefjunum (uppskrift hér að neðan) og það var agalega gott!
Uppskrift: 1 stór sæt kartafla 350 g kjúklingabaunir  2 msk. tahini 2 gróft söxuð hvítlauksrif safi af einni sítrónu 1-2 msk. ólífuolía salt og grófmalaður pipar eftir smekk 10 sólþurrkaðir tómatar saxaðir gróft
Aðferð:  Byrjið á því að skræla sætu kartöfluna og skera í litla bita og sjóðið hana svo í léttsöltu vatni í um 10 mínútur. Setjið síðan í matvinnsluvél ásamt öðru hráefni og maukið þar til blandan er orðin slétt og fín.
        -Verði ykkur að góðu :)
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Bláberjamúffur
Í dag naut ég sólarinnar og bakaði svo bláberjamúffur fyrir kvöldið. Ég fann þessa uppskrift í Happ bókinni en breytti henni aðeins. Ég setti t.d. sojamjólk í staðin fyrir ab mjólk og gróft spelt í stað heilhveitis og fannst mér þær heppnast rosalega vel. Ég mun hiklaust gera þessa uppskrift oftar :)!
Uppskrift: 2 þroskaðir bananar 5 dl gróft spelt 1½ tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi Salt á hnífsoddi 1 dl hrásykur 1 dl pekanhnetur, gróft saxaðar 1 dl 70% súkkulaði, gróft saxað 1 dl sojamjólk (blá) 1 egg ¾ dl ólífuolía 2 dl bláber
Aðferð: Blandið þurrefnunum og pekanhnetunum saman í skál. Pískið egg í annarri skál og hrærið olíu og sojamjólkinni saman við og bætið að lokum stöppuðum bönunum út í. Hellið þessu svo saman við þurrefnin í hinni skálinni og hrærið varlega. Bætið bláberjunum og súkkulaðinu síðast saman við. Setjið deigið svo í muffinsform og stráið smá hrásykri yfir. Bakið í 20- 25 mín við 180 gráður.
       -Ljúffengar múffur á sumarkvöldi :)
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Vefjur
Í gærkvöldi var ég með kjúklingavefjur í matinn. Ég bý alltaf vefjurnar til sjálf og finnst mér best að hafa fræ í uppskriftinni en þið getið auðvitað sleppt ��ví að hafa þau. Svo er bara að troða eins miklu grænmeti og kjúkling og maður getur og setja svo smá salsasósu ofan á. Ég hugsa að ég prófi næst að búa til hummus til að setja á vefjurnar!
Uppskrift: 5 dl spelt  ½ dl sesam- og sólblómafræ 1 tsk salt ½ dl ólífuolía sirka 1-½ dl heitt vatn
Aðferð: Blandið þurrefnunum saman í skál og nuddið olíunni inn í speltið. Bætið svo vatninu út í, litlu í einu og hnoðið þar til deigið er mjúkt viðkomu. Skiptið svo deiginu í 5-7 hluta eftir því hvað þið viljið hafa vefjurnar stórar. Rúllið svo hverjum hluta þunnt út og setjið á heita og þurra pönnu. Hafið vefjuna á í um 1 mín á hvorri hlið. Setjið tilbúnu brauðin inn í rakt viskastykki og síðan í plastpoka svo þau harðni ekki. 
      -Svo gott! Njótið vel :)
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Pizza
Þegar ég leyfi mér að fá mér pizzu geri ég hana alltaf sjálf eða fer á Saffran. Í gærkvöldi var þessi góða pizza í matinn á mínu heimili. Ég er búin að prófa mig mikið áfram með pizzuna og finnst mér lang best að gera þennan botn. Ég stelst svo til þess að setja smá sýrðan rjóma (mjólkuróþol) ofan á deigið í staðin fyrir pizzasósu. Svo set ég kjúkling og ost og inn í ofn. Þegar pizzan kemur úr ofninum set ég rucola og rauða papriku ofan á, besta blandan! Kærastinn minn kýs hinsvegar að fá pizzasósu og fimm mismunandi kjöttegundir á sína.
Uppskrift: 1 stór botn 3 dl gróft spelt 2 tsk lyftiduft 3 msk ólífuolía ½ dl graskersfræ ½ dl sólblómafræ 1 tsk salt smá oregano sirka 2 dl vatn
Aðferð:  Blandið saman öllum þurrefnunum og olíunni. Hellið svo vatninu út í þar til deigið er passlega blautt til þess að hnoða það. Fletjið deigið út og setjið á bökunarpappír. Botninn fer svo inn í ofn í sirka 20 mín.
         -Þessi uppskrift er sú allra besta sem ég veit um, þið bara verðið að prófa :)! 
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Mjólkurlaust berjajógúrt
Þetta er nú kannski ekki alveg jógúrt en kemur vel í staðin fyrir það fyrir þá sem eru að sleppa mjólkinni. Mér finnst þetta algjört nammi og gæti vel borðað í öll mál! 
Uppskrift: 1 dl frosin berjablanda Möndlumjólk eftir smekk Múslí
Berin eru sett í blender og svo í skál. Hellið svo möndlumjólk eftir smekk og múslí ofan á. Ekki mikið mál!
         -Verði ykkur að góðu :)!
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Hrökkbrauð
Ég hef lengi verið á leiðinni að prófa baka hrökkbrauð, en það var ekki fyrr en í dag sem ég loksins lét verða af því! Ég fann uppskrift af hrökkbrauði á netinu en breytti henni örlítið. Ég var mjög ánægð með útkomuna og á eflaust eftir að gera þessa uppskrift oft í framtíðinni. 
Uppskrift: 1 dl hörfræ 1 dl sesamfræ 1 dl grasker 1 dl sólblómafræ ½ dl matarolía 1 dl gróft spelt 1 ½ dl vatn 1 tsk lyftiduft  1 tsk salt
Aðferð: Öll hráefnin hrærð vel saman (er mjög blautt). Hellið deiginu svo út á smjörpappír og dreifið vel úr því og reynið að hafa mjög þunnt lag. Gott er að setja rifinn ost yfir.  Bakað í 25 mín við 200 gráður. Best er að láta þær liggja með engu plasti yfir svo þær verði stökkar.
        -Takk fyrir að fylgjast með blogginu mínu :)
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Uppskrift- Avocado jógúrt
Ég er með mjólkuróþol og sakna þess frekar mikið að geta ekki fengið mér jógúrt. Það er reyndar til soja-jógúrt en þessi eina tegund sem er til hérna finnst mér hræðilega vond. 
Ég varð því mjög glöð þegar ég fann þessa uppskrift og mæli hiklaust með henni!
         Uppskrift: ½ avocado 1 banani 1 mjúk aprikósa eða daðla 1 dl kókosvatn
Aðferð:  Allt sett í blandarann og blandað þar til mjúkt. Það er svo gott að setja ber, kókosflögur og graskersfræ út á. 
Njótið vel! 
0 notes
sigurbjorgs-blog · 13 years ago
Text
Sumarfrí
       Ég er komin í sumarfrí í skólanum og mætt vestur til ömmu og afa. Í dag útbjó amma þessar ljúffengu skonsur og notaði í þær sojamjólk og spelti fyrir barnabarnið sitt með sérþarfirnar. Lífið er ljúft!
-Vona að þið eigið góða helgi :)!
0 notes