veitingageirinn
veitingageirinn
Veitingageirinn.is
2K posts
Matur, vín, uppskriftir omfl. Icelandic Food & wine website, Chefs, waiters, Sommelier, Recipes etc. Snapchat: veitingageirinn
Don't wanna be here? Send us removal request.
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Játuðu stuld á 350 kg af humri
Játuðu stuld á 350 kg af humri
Tveir einstaklingar sem brutust inn í frystigám við húsnæði Humarsölunnar í Reykjanesbæ hafa játað verknaðinn, en um 350 kílóum af humri var stolið. Í tilkynningu frá lögreglunni sem að mbl.is birti fyrst, kemur fram að ljóst sé að annar mannanna hafi selt eitthvert magn áður en lögreglan hafði hendur í hári mannanna. Hefur lögregla ekki endurheimt nema hluta þýfisins. Sjá einnig: Stolinn humar í…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Matarmarkaður Búrsins nú um helgina
#MatarmarkadurBursins
Matarmarkaðurinn árið 2014. Matarmarkaðurinn hefur alltaf verið afar vel sóttur. Mynd: Helga Björnsdóttir. Matarmarkaður Búrsins verður haldin nú um helgina í Hörpu og verður opið bæði laugardag og sunnudag frá kl. 11 til kl. 17. Á markaðnum eru samankomnir allskyns framleiðendur með ólíkar vörur. Bændur, sjómenn og smáframleiðendur, allir illa þjakaðir af matarframleiðsluást. Matarmarkaðurinn…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Gerðu þér mat úr Facebook - Finnskur frumkvöðull fjallar um sölu beint frá býli
Gerðu þér mat úr Facebook – Finnskur frumkvöðull fjallar um sölu beint frá býli
Hvaða tækifæri felast í því fyrir smáframleiðendur að selja vörur sínar beint á Netinu? Hvernig er hægt að efla sölu á mat beint frá býli og styrkja samband kaupenda og seljenda? Er hægt að bæta dreifileiðir og tryggja farsæl viðskipti árið um kring? Þetta eru spurningar sem finnski bóndinn og frumkvöðullinn Thomas Snellman og fleiri ætla að svara á ráðstefnu í Hörpu sunnudaginn 4. mars um…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Glæsilegt útisvæði verður við veitingastaðinn Tölvuteiknuð mynd
Bragginn Bistró er nýr veitingastaður í Nauthólsvík sem staðsettur er við Nauthólsveg 100 (gamla hótel Winston).
Fyrir tveimur árum síðan var birt hér færsla um að endurbyggja eigi bragga og innrétta hann sem veitingastað við Nauthólsveg sem nú er orðið að veruleika.
Bragginn og sambyggð skemma voru byggð af Bretum og voru hluti af svokölluðu „hótel Winston“ á stríðsárunum en hafa síðustu ár legið undir skemmdum. Það er Reykjavíkurborg sem hefur staðið höfðinglega að framkvæmdum og uppbyggingar á bragganum.
Daði Agnarsson er rekstraraðili Braggans Bistró og verður í góðu samstarfi við nemendur og starfsfólk í Háskólagörðum HR. Þess má geta að Daði er jafnframt rekstraraðili veitingastaðarins á BSÍ, Mýrin Mathús (áður Fljótt og gott) frá árinu 2011.
Bragginn Bistró mun bjóða upp á einfaldan og góðan mat á viðráðanlegu verði ásamt nemendaaðstöðu og frumkvöðlasetur. Hönnun húsnæðisins hefur verið í samráði við fulltrúa nemenda HR ásamt fleirum.
Bragginn tekur ca. 80 manns í sæti ásamt frumkvöðlasetri og glæsilegu útisvæði.
Áhersla verður lögð á að hægt sé að breyta rýminu með tilliti til mismunandi þarfa, til dæmis viðburða á vegum nemendafélaga og annarra aðila.
Framkvæmdir eru í fullum gangi og er áætlað að opna í lok mars næstkomandi. Meðfylgjandi myndir tók Daði Agnarsson og er birt hér með góðfúslegu leyfi hans.
#BragginnBistro Bragginn Bistró er nýr veitingastaður í Nauthólsvík sem staðsettur er við Nauthólsveg 100 (gamla hótel Winston).
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Food and Fun matarhátíðin hófst í gær og er þetta í sautjánda skipti sem hún er haldin hér á Íslandi. Hátíðin stendur yfir dagana 28. febrúar til 4. mars næstkomandi.
Matseðlarnir eru einkar fjölbreyttir í ár og gefst gestum hátíðarinnar kostur á að smakka allt frá finnsku flatbrauði með ígulkerjasmjöri að kjúklingahjörtum og kamillublómum svo fátt eitt sé nefnt.
Veitingastaðirnar sem taka þátt í fjörinu í ár eru sextán talsins. Hátíðin hefur farið ört vaxandi síðastliðin ár og er löngu búin að festa sig í sessi sem fastur liður í matarmenningu Reykvíkinga.
Hátíðin var formlega sett í Hótel- og matvælaskólanum í gær og buðu nemendur upp á glæsilega veislu (sjá matseðilinn hér).
Sjá einnig: Nemendur í Hótel og matvælaskólanum bjóða upp á glæsilega veislu á formlegri setningu Food & Fun hátíðarinnar
Erlendu gestakokkarnir í ár koma víðsvegar að úr heiminum. Meðal annars frá Bandaríkjunum, Norðurlöndunum, Frakklandi, Líbanon, Ítalíu, Spáni, Argentínu og Laos og matseðlarnir því einstaklega fjölbreyttir í ár. Allar frekari upplýsingar um hátíðina, veitingastaðina og matseðla má nálgast á www.foodandfun.is
Með fylgja myndir frá setningu Food & Fun hátíðarinnar í gær í Hótel- og matvælaskólanum.
Myndir: Guðmundur Guðmundsson matreiðslumeistari
#FoodAndFun Food and Fun matarhátíðin hófst í gær og er þetta í sautjánda skipti sem hún er haldin hér á Íslandi.
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Forkeppni í nemakeppni Kornax í bakstri verður haldin á föstudaginn 2. mars næstkomandi. Keppnin fer fram í bakaradeild stofu v207 í Hótel- matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi.
6 bakaranemar keppa en þeir eru:
Víðir Valle, IKEA
Viðar Logi Pétursson, Brikk
Jófríður Kristjana Gísladóttir, Kruðerí
Hrólfur Erling Guðmundsson, Hjá Jóa Fel
Karen Eva Harđardòttir, Brauð & co
Hákon Hilmarsson, Aðalbakarí á Siglufirði
Sjá einnig: Nemakeppni Kornax í bakstri
Æfingar eru í fullum gangi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
  Myndir: Ásgeir Þór Tómasson bakarameistari
#Nemakeppni #Bakari #Kornax Forkeppni í nemakeppni Kornax í bakstri verður haldin á föstudaginn 2. mars næstkomandi. Keppnin fer fram í bakaradeild stofu v207 í …
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Á morgun hefst Food & Fun hátíðin með formlegri setningu í Hótel- og matvælaskólanum í MK, en skólinn hefur frá upphafi annast móttöku fyrir gesti og velunnara keppninnar.
Boðið verður upp á glæsilega veislu sem fram verða bornar af nemendum skólans.
Í matreiðsludeildinni eru nemendum skipt upp í hópa og vinna allir hópar með sama hráefnið. Þeir útfæra réttina eftir sínum hugmyndum. Þrír hópar í heitum mat og þrír hópar í köldum mat.
Nemendur eru búnir að undirbúa veisluna mánudag og í dag þriðjudag, síðan er lokahönd lögð á réttina og þeir framreiddir á ýmsa vegu á morgun.
Með fylgja nokkrar myndir þegar hóparnir voru að hanna réttina samkvæmt hráefnislista sem unnið var í bóklegum tímum, hráefnisfræði, sósum og matreiðsluaðferðum.
Það var Guðmundur Guðmundsson matreiðslumeistari og kennari skólans sem tók myndirnar.
Réttirnir eru allir í smárétta formi, skeiðar, litlar skálar, á ýmiskonar bakstri og lamb verður skorið (transerað) í sal.
Hér fyrir neðan eru allir réttirnir:
Reykt bleikju-ballontina með estragon-sýrðum rjóma á stökkri vöfflu
Appelsínigrafinn lax í pönnuköku með dill-rjómaost-froðu
Hörpufiskur með grænkáls kimichi
Heimagerður harðfiskur og rúgbrauðsþynnur með reyktum þorskhrognum og kryddjurtadufti
Blini með bleikju og rauðrófumauki
Reykt gæs, heimagert flatbrauð, lauksulta, epli og piparrótar mæjó
Lambatartar, stökkt bygg og sinneps chantylli krem
Íslenskt skyr, bakað hvítt súkkulaði, sítrónumatenges og blóðbergsgranita
Grafið lamb, brúnað smjörkrem og sýrður perlulaukur
Djúpsteikt dalayrja, rifsberjacompott og vorlaukssalsa
Reykt bleykja, dillvinaigrette, þorskhrogn, piparrótarmæjo og rúgbrauðskrisp
Saltfisk brandad, grænkál og sýrðir sellerí-borðar
Lambafille, blómkálsmauk, perlulaukur og timian lamba-gljái
Skyrmús, hafracrumbl og berjasósa
Tartaletta Grafin hrossalund, sýrðir shitake sveppir og djúpsteikt bygg
Reykt bleikja Stökkt roð, bleikjuhrogn, dillolía og piparrótarmæjó
Kryddgrafinn þorskur Brend sítróna, steiktir tómatar, sellerímauk og djúpsteikt þorskhrogn
Steikt lambafille Saltbökuð rófa, sýrður perlulaukur, sáterað grænmeti og portvínssós
Eldsteikt hörpuskel í kremuðu pernot
Myndir: Guðmundur Guðmundsson matreiðslumeistari og kennari Hótel- og matvælaskólans.
#FoodAndFun Á morgun hefst Food & Fun hátíðin með formlegri setningu í Hótel- og matvælaskólanum í MK, en skólinn hefur frá upphafi annast móttöku fyrir gesti og velunnara keppninnar.
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Issi Fish & Chips í samkeppni við Lobster-hut
#IssiFishChips #Samkeppni #LobsterHut
Lobster hut í miðbænum. Mynd: úr safni Lobster-hut hefur óskað eftir lóð við Fitjar í Reykjanesbæ undir starfsemi sína, en fyrirtækið rekur matarvagna á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars í miðbænum auk þess að bjóða uppá þjónustu á hinum ýmsu bæjarhátíðum meðal annars á Ljósanótt, að því er fram kemur á vefnum sudurnes.net. Veitingahjónin Jóhann Issi Hallgrímsson og Hjördís Guðmundsdóttir. Mynd:…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Garðar Kári Garðarsson er Kokkur ársins 2018
#KokkurArsins
Nú rétt í þessu voru úrslitin kynnt í keppninni Kokkur ársins sem haldin var í Flóa í Hörpu í dag. Það var Garðar Kári Garðarsson sem hreppti titilinn Kokkur ársins 2018. Sigurjón Bragi Geirsson í öðru sæti og Þorsteinn Kristinsson í þriðja sæti. Um keppnina Fréttayfirlit frá keppninni Kokk ársins hér. Forkeppnin Faglærðir kokkar sendu inn uppskriftir af þremur smáréttum úr ýsu, grískinn &…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Bein útsending – Kokkur Ársins 2018
#KokkurArsins
Keppendur í úrslitum 2018. F.v. Þorsteinn Geir Kristinsson Fiskfélaginu, Sigurjón Bragi Geirsson Garra, Iðunn Sigurðardóttir Matarkjallaranum, Bjartur Elí Friðþjófsson Grillmarkaðnum, Garðar Kári Garðarsson Deplar Farm. Fréttayfirlit frá keppninni Kokk ársins hér.
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Úrslitakeppni í Kokkur ársins 2018 fer fram í dag
#KokkurArsins
Keppendur í úrslitum 2018.F.v. Þorsteinn Geir Kristinsson Fiskfélaginu, Sigurjón Bragi Geirsson Garra, Iðunn Sigurðardóttir Matarkjallaranum, Bjartur Elí Friðþjófsson Grillmarkaðnum, Garðar Kári Garðarsson Deplar Farm. Fimm manna úrslitakeppni í Kokkur ársins keppninni fer fram í Hörpu í dag, laugardag 24. febrúar. Keppendur sem munu keppa um titilinn Kokkur ársins 2018: Bjartur Elí Friðþjófsson,…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Spennan í hámarki - Kokkur ársins á morgun - Vídeó
#KokkurÁrsins
Í dag fá keppendur að líta verkefni keppninnar sem er í “mystery basket” formi, skrifa matseðil og tína saman hráefnið sitt. Á þessari stundu má búast við háu spennustigi og að kokkarnir bíði spennt eftir að geta komist inn í eldhúsin og hafist handa. Keppnin hefst svo 13:30 á morgun í Flóa í Hörpu. Í myndbandi innlit í stemninguna frá í fyrra. Enn lausir örfáir miðar inn á lokakvöldið fyrir…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Nemakeppni Kornax í bakstri - Forkeppnin haldin 2. mars
#Nemakeppni #Kornax #Bakarar
Sigurvegari í Nemakeppni KORNAX árið 2016 og 2017, Gunnlaugur Arnar Ingason, en hann lauk sveinsprófi í bakaraiðn á síðasta ári. Mynd: kornax.is Forkeppni í nemakeppni Kornax í bakstri verður haldin 2. mars næstkomandi. Keppnin fer fram í bakaradeild stofu v207 í Hótel- matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi. Keppendur Hópur 1. Mæting kl 8:30 í Björnsstofu, föst. 2. mars. – kl. 9.00-14:00…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Íslenska bjórhátíðin hefst á morgun - Sjáðu alla dagskrána hér
KEX Hostel og KEX Brewing heldur hina árlegu íslensku bjórhátíð á fimmtudag, föstudag og laugardag. Hátíðin er haldin í tilefni af 29 ára afmælisdegi íslenska bjórsins, en þann 1. mars árið 1989 var almenn sala á bjór leyfð eftir 74 ára sölubann. KEX Hostel hefur boðið íslenskum og erlendum bruggurum í heimsókn til að kynna sig og sína framleiðslu dagana sem hátíðin fer fram. Öll helstu brugghús…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Hver verður Kokkur ársins 2018? - Könnun
#KokkurArsins
Keppendur í úrslitum 2018.F.v. Þorsteinn Geir Kristinsson Fiskfélaginu, Sigurjón Bragi Geirsson Garra, Iðunn Sigurðardóttir Matarkjallaranum, Bjartur Elí Friðþjófsson Grillmarkaðnum, Garðar Kári Garðarsson Deplar Farm. Eins og kunnugt er þá var forkeppni um titilinn Kokkur ársins 2018 haldin í gær og þeir fimm sem náðu efstu sætunum keppa til úrslita laugardaginn 24. febrúar næstkomandi í Flóa í…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Nýja Norræna Michelin handbókin komin út - Íslenski listinn óbreyttur
#3MichelinStars #michelinguidenordic2018
Í gær var nýja Norræna Michelin handbókin kynnt við hátíðlega athöfn í Ráðhúsi Kaupmannahafnar. Nokkar breytingar urðu á listanum og nýr veitingastaður bættist við listann, en það er veitingastaðurinn Frantzén í Stokkhólmi og er jafnramt fyrsti veitingastaðurinn í Svíþjóð sem hlýtur þrjár Michelin stjörnur. Frantzén fékk þrjár Michelin stjörnur, en eigandi staðarins er Björn Frantzén…
View On WordPress
0 notes
veitingageirinn · 7 years ago
Text
Þessi keppa til úrslita um titilinn Kokkur ársins 2018
#KokkurArsins
Fimm efstu keppendur ásamt forseta Klúbbs matreiðslumeistara Birni Braga Bragasyni Í dag fór fram undanúrslit um titilinn Kokkur ársins 2018 en keppnin fór fram á á Kolabrautinni í Hörpu. Sjá einnig: Myndir frá forkeppni Kokkur ársins 2018 Átta keppendur elduðu þrjá smárétti úr ýsu, grísakinn & kjúklingaskinni og rófum. Fimm efstu keppendur voru valdnir af dómnefnd nú rétt í þessu en þeir…
View On WordPress
0 notes