Don't wanna be here? Send us removal request.
Text
Ungir jafnaðarmenn á Seltjarnarnesi hafa skýra sýn hvað varðar framtíð bæjarins

Bjartur, félag ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi, hélt aðalfund í frumkvöðlasetrinu á Eiðistorgi 15. maí sl. Ungir Seltirningar fjölmenntu á fundinn og greinilegt að ungt fólk lætur sig málefni framtíðar Seltjarnarness varða en yfirskrift fundarins var „Hvernig vilt þú sjá Seltjarnarnes eftir 10 ár“. Húsnæðismál ungs fólks á Seltjarnarnesi var mál málanna en ungir jafnaðarmenn vilja að byggt verði húsnæði fyrir ungt fólk á hagstæðu verði út í Bygggörðum, bensínstöðvarplaninu á Austurströnd og bílastæðinu við Eiðistorg.
Enn fremur vilja ungir jafnaðarmenn að íbúaþróun á Seltjarnarnesi verði snúið við, klárað verði að leggja göngu- og hjólastíg allan hringinn á Seltjarnarnesi, að bærinn verði leiðandi í að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla, að Félagsheimili Seltjarnarness verði betur nýtt, meira menningarlíf í bæinn, aukin flokkun sorps svo eitthvað sé nefnt.
Á fundinum var kosin ný stjórn Bjarts en stjórnina skipa Anna Lilja Björnsdóttir, Tómas Gauti Jóhannsson, Sunna María Helgadóttir, Eva Rún, Nanna Árnadóttir og Gissur Ari Kristinsson.
0 notes
Link
Aðalfundar Bjarts fer fram fimmtudaginn 15. maí klukkan 20:00 í Frumkvöðlasetrinu á Eiðistorgi, gengið inn við hlið gömlu Blómastofunnar. Ásamt hefðbundnum aðalfundarstörfum mun ungum Seltirningum, uppöldum, aðfluttum og brottfluttum á aldrinum 16-35 ára gefast tækifæri á að vinna saman að framtíðarsýn fyrir Seltjarnarnes eða hvernig við viljum sjá Seltjarnarnes eftir 10 ár. Boðið verður uppá frábærar veitingar. Láttu sjá þig og leggðu þitt að mörkum við mótun Seltjarnarness til næstu ára!
0 notes
Photo

Fyrstu átta sætin á framboðslista Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi voru samþykkt á félagsfundi á Seltjarnarnesi í gær. Margrét Lind Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun og varaformaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar mun leiða listann áfram. Í öðru sæti verður Guðmundur Ari Sigurjónsson, 25 ára tómstunda- og félagsmálafræðingur og Eva Margrét Kristinsdóttir, 28 ára lögfræðingur í ��ví þriðja en þau eru bæði meðlimir í Bjarti.
Kosið var um tillögu uppstillinganefndar á fyrstu 8 sætunum og var listinnn samþykktur einróma.
Nöfn frambjóðenda:
1. Margrét Lind Ólafsdóttir – Sérfræðingur og varaformaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.
2. Guðmundur Ari Sigurjónsson – Tómstunda-og félagsmálafræðingur.
3. Eva Margrét Kristinsdóttir – Lögfræðingur
4. Magnús Dalberg - Viðskiptafræðingur
5. Sigurþóra Bergsdóttir - Ráðgjafi
6. Jakob Þór Einarsson – Ráðgjafi
7. Laufey Elísabet Gissurardóttir – Þroskaþjálfi
8. Stefán Bergmann - Dósent
Við í Bjarti fögnum þessum fjölbreytta lista sem samanstendur af strákum og stelpum �� öllum aldri.
0 notes
Text
Félagsfundur - Uppstillingarnefndin skilar af sér og kynning á ÍTS
Kæru vinir!
Samfylkingin á Seltjarnarnesi heldur félagsfund þriðjudaginn 18. febrúar kl. 20 í hátíðarsal Gróttu. Dagskrá: 1. Hver munu leiða framboðslistann okkar? Uppstillinganefnd leggur fram tillögu til afgreiðslu að skipan efstu sæta á lista Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi við sveitarstjórnarkosningarnar í vor. 2. Íþrótta- og tómstundastarf á Seltjarnarnesi: Eva Margrét Kristinsdóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í ÍTS og Guðmundur Ari Sigurjónsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur og verkefnastjóri Selsins munu kynna fyrir okkur starfsemina. Umræður um íþrótta og tómstundastarfið á Seltjarnarnesi. Hlökkum til að sjá ykkur. Stjórnin
0 notes
Photo

Lagt á ráðin á bæjarmálafundi
0 notes
Text
Samfylkingin á Seltjarnarnesi með 11.3%
Nú þegar kosningarbaráttan er að rétt að fara af stað mælist Samfylkingin á Seltjarnarnesi með 11.3% samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands sem birtist í Morgunblaðinu. Það má því með sanni segja að það sé spennandi vetur framundan og alltaf gaman að byrja lágt og geta þá stokkið hátt! Nú þurfum við jafnaðarmenn að taka höndum saman og gera þetta að góðri „underdog” sögu!
0 notes
Text
Bjart framundan á Nesinu!
Við berum góðar fréttir! Það er Bjart framundan á Nesinu. Endilega fylgist með og gangið til liðs við okkur. Það er löngu kominn tími á að ungt fólk láti í sér heyra á Nesinu og að við hættum að láta bola okkur út úr okkar eigin sveitarfélagi! Nesið er kanski ekki stærsta sveitarfélag landsins en það getur samt vel rúmað ungt fólk! Allir flottir
0 notes