gunnhildurjodis-palmithor-blog
gunnhildurjodis-palmithor-blog
Gunnhildur & Pálmi
1 post
Don't wanna be here? Send us removal request.
Text
Brúðkaupsundirbúningur
Síðastliðnar vikur hafa einkenst ansi mikið af undirbúningi fyrir brúðkaupið. Við hefðum ekki trúað því hvað það er margt sem maður þarf að huga að sem og hversu snemma. Til að mynda höfðum við samband við Fimleikafélagið í Hafnafirði (FH) varðandi leigu á sal sem er á þeirra snærum í Apríl 2015. Það gekk ekki betur en svo að við fengum höfnun og ábendingu um að við værum sko heldur betur sein í að bóka. Fimmtán mánuðir voru semsagt ekki nóg fyrirvari. 
Eftir töluvert vesen til að byrja með fór boltinn að rúlla fyrir alvöru í lok árs 2015. Hér að neðan eru highlights úr ferlinu hingað til.
Salurinn sem okkur leist best á negldur, http://glersalurinn.is 
Gunnhildur hitti bresk-asíska saumakonu til að sauma kjólinn fyrir sig
Awesome brúðkaupsferðarplön og bókanir klárar
Höfðum samband við nokkra ljósmyndara og náðum góðri lendingu, http://www.snorribjorns.is
Við ákváðum að safna froosh flöskum fyrir drykki og það er magnað hvað bókstaflega allir hafa hjálpað okkur (Það er vesen að fjarlæga miða af froosh flöskum!)
Séra Hjálmar Jónsson, einn af líklega 1000 skólafélögum Ísaks (pabba/tengdó), mun gefa okkur saman í Dómkirkjunni í Reykjavík
Guðrún Árný, söngdíva og píanóleikari, mun sjá um söng og undirleik í athöfninni, http://gudrunarny.weebly.com/
Grillvagninn mun sjá til þess að enginn fari út svangur
Brúðkaupskökusmakkið ala Íris Kamilla, sá til þess að dómnefnd lág afvelta en sigurkakan stóð uppúr!
Veislunni mun vera stýrt af einvalaliði en það eru systkini okkar beggja, þau Árni Geir og Sigrún
Gunnhildur hefur mögulega skoðað öll pins á pinterest sem eru merkt brúðkaupi og mælum við með því fyrir inspiration
Og að lokum... Þá er þetta að sjálfsögðu allt saman í Excel eftir hæstu gæðastöðum Gunnhildar
Ótrúlegt en satt, þá reyndust brúðkaupskortin vera einn mesti höfuðverkurinn í ferlinu hingað til. Áttum í erfiðleikum með að vera bæði fullkomlega sátt og sammála en erum í dag mjög ánægð með útkomuna. S/O á Írisi Kamillu fyrir einstaklega mikla hæfni og dugnað í föndrinu með okkur! Endum þetta svo á smá myndum frá kortagerðinni, sem fór að hluta til fram á TGI Fridays :’)
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
0 notes