Text
Hvað er svifryk
Svifryk er aragrúi agna í andrúmsloftinu. Svifryk getur valdið mengun. Svifryksagnir geta einnig valdið heilsubresti ef agnirnar setjast að í lungum.
Mengun-orsakir:
-nagladekk: hvert nagladekk framleiðir 100 sinnum meira svifryk en óneglt dekk.
-dísel: díselknúin bifreið framleiðir margfalt meira fínkorna svifryk heldur en bensínknúin bifreið.
-vegtollar: lækkun á hámarkshraða og lokanir gatna geta minnkað umferð og þar með svifryksmengun.
-skolun og rykbinding gatna hefur borið einhvern árangur við að minnka svifryksmengun.
· Gróft svifryk er að mestu úr tjara, gúmmí og önnur hörð efni.
· Fínt svifryk er úr efnasamböndum sem verða til við bruna eldsneytis
· Stillt og þurrt veður (kaldir vetrardagar)-mengun safnast upp þar sem ekki er mikil hreyfing á loftinu.
· Mikil umferð – er ein ástæða fyrir svifryksmengun.
· Mikið rok, mikið um uppfok á ögnum frá jarðvegi og umhverfi.
Fínt svifryk er mun hættulegra en gróft svifryk. Fína svifrykið er það létt að það getur borist langar leiðir með loftstraumum og valdið víðtækum skaða. T.d getur fínt svifryk borist í lungu og safnast þar upp sem er hættulegt fyrir mannslíkamann
0 notes
Text
Hvernig má koma í veg fyrir svifryksmengun?
Svifryksmengunin er stærra vandamál en við höldum. Þess vegna er mikilvægt að koma í veg fyrir hana. En hvað er hægt að gera? Ýmislegt er hægt að gera til að minnka svifryksmengunina til muna. Norksa vegagerðin segir að hvert nagladekk framleiðir 100 sinnum meira svifryk en ónelgt dekk. Nagladekk eru bönnuð í Þýskalandi og Japan og á Íslandi er maður sektaður 5000 kr. fyrir hvert nagladekk sem maður notar eftir 15. apríl.
Skolun og rykbinding gatna hefur einnig borið árangur en ef aukin er skolun og rykbinding mun árangurinn vera mun betri. Lækkun á hámarkshraða hefur líka góð áhrif en því hraðara sem bílar keyra á götuni, því meiri svifryksmengun. Vegtollur og lokun gatna getur líka haft áhrif vegna þess að þetta minnkar umferð og þar af leiðandi sviryksmengun. Norsku astmasamtökin segja að díselvél framleiði meira fíngert svifryk en bensínknúin vél. CO2 mengun þeirra hefur minnkað og er NO2 mengun þeirra um fimmföld á við NO2mengun bensínknúinna bifreiða. Íslendingar hafa ekki minnkað notkun díselvéla.
0 notes
Text
Hvaða afleiðingu hefur svifryksmengunin á menn og dýr?
Svifryk getur haft mjög slæm áhrif á heildufar manna og dýra. Þessu slæmu áhrif verða þegar agnir berast í blóðstraum lífvera. Ef agnirnar eru fínar fara þær í gegnum lungun en þær sem grófari eru setjast að í lungunum. Slæmu áhrifin eru að agnirnar geta valdið heilsubresti og magnað uppa önnur veikindi eða aðra sjúkdóma sem voru þegar til staðar. Gott dæmi um kvilla sem svifryk hefur slæm áhrif á eru astmi, ofnæmi, hjartsláttaróregla og lungnateppa. Einnig hefur svifryk slæm áhrif á börn sem eru að taka út lungnaþroska. Vegna svifryksins er lífsgæðaskerðing barna, aldraðra og sjúklinga mikil. Svifryk hefur ekki bara einhver smávægileg áhrif, heldur getur það drepið lífverur. Ef hlutfall þeirra sem deyr fyrir aldur fram vegna svifryksmengunar á norðurlönsunum er yfirfært á Ísland, þá gætu u.þ.b. 200 Íslendingar fallið frá fyrir aldur fram árlega vegna menguninnar!
0 notes