Don't wanna be here? Send us removal request.
Text
Bíómyndir
Bíómyndir hafa bæði góð og slæm áhrif á okkur. Bíómyndir sýna bæði eitthvað sem gerist í raunveruleikanum og eitthvað er óraunverulegt og allt þar á milli. Það eru til allar tegundir af bíómyndum allt frá ástar til ofurhetju. Þegar við horfum á bíómyndir lifum við okkur inn í þær og þannig hafa þær áhrif á okkur. Eins og í raunveruleikaþáttunum þá er oft sýnt hið fullkomna líf og allt endar vel sem í raunverulífi er ekki alltaf svoleiðis. En góðu áhrifin eru að bíómyndir eru gamansefni og við skemmtum okkur og njótum þegar við horfum á bíómyndir. Það að fara t.d í bíó er partur af afþreyfingu okkar g# 1v
0 notes
Text
Sjónvarp
Flestir raunveruleikarþættir eru búnir til, til að græða pening. Ég tel að mikið af þessum raunveruleikaþáttum séu leiknir og það sé farið eftir einhverju handriti. Góð dæmi um þannig raunveruleikaþætti eru þættirnir um Kardashian fjölskylduna og Real housewives. Þessir þættir sýna einhverskonar glanslíf ekki alvöru líf eins og nafið gefur til kynna. Þessir þættir sýna inn í líf ríka og fræga fólksins og líf þeirra sýnist vera fullkomið en svo er ekki. Ég tel að þetta hafi ekki góð áhrif á venjulegt fólk að horfa á þessa þætti, því maður byrjar að bera líf sitt við þetta lúxus líf sem er ekki gott og hefur ekki góð áhrif á andlegu hliðina. En það eru ekki bara til raunveruleikaþættir sem hafa neikvæð áhrif einnig eru til fullt af þáttum sem hafa góð áhrif og hægt er að læra af eins og t.d kokkaþættir og fræðiþættir.
0 notes
Photo

Tónlist
Mikið af tónlistinni nú til dags er algjört bull og textarnir innihaldslausir. Við hlustum mikið af tónlist á ensku og í raun og veru erum við ekkert að pæla hvað er verið að segja í textanum og mikið af þessu vinsælu lögum er með texta sem er ekki að segja góða hluti. Svo eru ung börn og krakkar að hlusta á þessi lög sem hefur ekki góð áhrif. Flest tónlistin er til að græða peninga og eru tónlistarmyndböndin gott dæmi um það. Í flestum af þessari vinsælu tónlist er mikið um nekt og fáklæddar konur, reykjandi menn og dóp og peningar. Þessi myndbönd selja og fólk græðir á þeim. Í raun og veru eru þessi myndbönd ekki góð fyrirmynd fyrir lífið og ungt fólk. Einnig er tónlist nú til dags sem er með texta með einhverju góðu innihaldi og myndböndum innan skynsemismarka. Í heildina er þessi vinsæla tónlist með fleiri galla heldur en kosti.
0 notes
Photo

Samskiptamiðlar
Ég tel að samskiptamiðlarnir eru bæði gagnlegir og líka óþarfir, það eru bæði kostir og gallar við þá. Nú til dags eyða flesir of miklum tíma í samskiptamiðla eins og t.d Facebook og Instagram í að fylgjast með öðrum og sýna sitt eigið líf. Kostirnir eru t.d allt fréttist fyrr þegar eitthvað gerist, tengist betur vinum og fjölskyldu erlendis og það eru mjög margir kostir hjá þeim sem eru með fyrirtæki t.d minni markaðskostnaður og sala eykst. Ókostirnir flest fólk eyðir of miklum tíma í þessa samfélagsmiðla og því eyðum við minni tíma í að vera saman í persónu, fólk getur falið sig og er ekki það sjálft, segir allt sem það dettur í hug og rakkar niður hvort annað, maður pælir of mikið í öllum öðrum og finnst eins og líf þeirra sé betra en í raun og veru þá er oft líf annarra ekki svona fullkomið og maður getur orðið háður samfélagsmiðlum. Fólk fær borgað fyrir að taka myndir af sér til að sýna vöru til að birta á samfélagsmiðla en þessar myndir eru ekki raunveruleikinn. Ég tel að það séu fleiri ókostir við samfélagsmiðla heldur en kostir, því tel ég að þeir séu ekki eins ganglegir og við höldum.
0 notes
Photo

Henri de Toulouse-Lautrec Henri de Toulouse-Lautrec eða á fullu nafni Henri Marie Raymond de Toulouse-Lautrec-Monfa var fæddur Í Frakklandi 24. nóvember 1864. Hann var t.d listmálari, teiknar og myndskreytir. Hann var undir stefnu póst impressjónisma. Myndir hans einkenndust af sterkum útlínum, dökkum litum og fólki. Þeim tíma sem hann lifði gerði hann nánast óteljandi magn af verkum á um 20 árum. Eitt af frægustu verkum Henri er t.d. At the Moulin Rouge sem hann málaði árið 1890, sem er málverk frá dansleik, máluð mynd af vel dressuðu fólki, dansandi og sitjandi að spjalla saman. Annað verk sem hann var þekktur fyrir er Salon at the Rue des Moulins sem hann málaði 1894 sem er mynd fjórum mismunandi konum sitjandi.
0 notes
Photo
Paul Gauguin
Paul Gauguin eða á réttu nafni Eugène Henri Paul Gauguin, hann var fæddur 7 júní 1848 í París Frakklandi. Á æskuárunum bjó hann um tíma í Perú. Hann var ekki lærður myndlistarmaður enn hafði mikinn áhuga á henni. Hann var verðbréfasali og hann safnaði málverkum í stíl impressjónisma. Um árið 1870 byrjaði Paul sjálfur að mála og þegar hann byrjaði að mála kynntist hann Camille Pissarro og máluðu þeir í anda impressjónisma og héldu þeir oft sýningar saman þar sem þeir sýndu verk sín. Hann var þekktur fyrir sterka liti og línur og einföld form Gegnum tíðina ferðist Paul mikið og heimsótti hann mörg lönd og vildi hann kynnast mismunandi menningu.
0 notes
Photo

Edgar Degas Edgar Degas fæddist árið 19 júlí árið 1834 í Frakklandi. Hann kom frá vel stæðri fjölskyldu og var hann elstur fimm systkina. Edgar var þekktur t.d fyrir málverk sín og teikningar. Edgar var einn af þeim sem mótuðu impressjónisma og málverk hans voru í anda þess. En sjálfur vildi hann kalla sig raunsæismann. Hann byrjaði ferill sinn sem sögu málari, en um þrítugs aldurinn breytti hann til og varð klassískur málari í nútíma lífi. Hann lést í París árið 1917 83 ára gamall. Frægustu verk hans eru t.d málverkin The Bellelli Family var olíu málverk málað á árunum 1885-1867 málverkið er mynd af frænku hans, eiginmanni hennar og tveimur dætrum þeirra. Woman With Chrysanthemums var málað árið 1865 og er málverk af konu sitjandi hliðina á blómavasa með mörgum blómum.
0 notes
Photo

Mark Twain
Mark Twain eða á réttu nafni Samuel Langhorne Clemens fæddist Í bandaríkjunum í Missour 30. Nóvember árið 1835. Hann var mjög vinsæll rithöfundur en einnig vinsæll fyrirlesari á sinni tíð. Hann vann meðal annars sem stýrismaður á fljótabáti. Þegar þrælastríðið brást á myndaði hann herflokk með vinum sínum en lentu þeir aldrei í átökum og síðar hélt hann til Nevada með bróður sínum, þar vann hann í námavinnslu en það gekk ekki vel. Eftir að hafa reynt fyrir sér í námavinnslunni fékk hann vinnu við dagblað í Virginia City í Nevada og þar tók hann upp rithöfundarnafnið Mark Twain. Mark Twain giftist Oliva Langdon í New York árið 1870. Þau voru gift í 34 ár eða þanngað til Oliva lést árið 1904. Þau áttu saman þrjár dætur Susy, Clara og Jean. Á seinni árum hans létust dætur hans og þá gekk hann í gegnum mikið þunglyndi. Mark Twain lést í apríl árið 1910 úr hjartaáfalli.
Skáldsagan Stikilberja-Finnur eða á réttu nafni The adventures of Huckleberry Finn er frægasta verk Mark Twain en skáldsagan er talin með sígildum meistaraverkum bandarískra bókmennta
0 notes
Photo

Man Ray Man Ray eða á réttu nafni Emmanuel Radnitzky var fæddur 27.ágúst 1890 í Bandaríkjunum í Fíladelfíu. Hann var sonur rússneska gyðinga sem höfðu flutt til Bandaríkjanna. Hann var lærður myndlistarmaður og hann flutti til Parísar árið 1921 sem hægt er að kalla höfuðborg listalífs í heiminum. Í París sló hann í gegn sem ljósmyndari og hann myndaði marga af félögum sínum.
Man Ray var súrrealískur listamaður og var hann líklegast fæddur sem hugmyndasmiður fáránleikans, hverskonar undarlegra tiltekta og var því upplagi sínu trúr lífið í gegn. Hann gerði verk til að skemmta fólki, gera það ruglað í rýminu og til að æsa það upp eða búa til leiðindi. Eitt af þekktustu verkum hans er Le violon d‘Ingres (The violon of Ingres) það er ljósmynd af Kiki de Montparnasse þar sem hún situr fyrir nakin með túrbana á höfðinu. Hann breytti kvenlíkamanum í hljóðfæri með því að mála nótur á bakið hennar.
0 notes
Photo

Cole Porter
Cole Albert Porter var fæddur 9. júní 1891 og látinn 15. október 1964. Hann var bandarískt tónskáld og lagahöfundur. Hann var fæddur að auðugri fjölskyldu í Indiana, hann fór ekki eftir óskum stjórnsama afa síns og tók upp tónlist sem starfsgrein. Hann var vel lærður, og vegna þess dróst hann að tónlisthúsinu. Eftir hæga byrjun byrjaði hann að ná árangri um 1920, og um 1930 var hann einn af helstu lagahöfundum fyrir Broadway tónlistarsvið. Ólíkt örðum Broadway tónskáldum, skrifaði hann Porter textann, sem og tónlist, fyrir lögin hans. Eftir alvarlegt slys á hestbaki árið 1937, varð Porter lamaður og með stöðugan verk, en hann hélt áfram vinnu sinni. Sýningar hans snemma frá 1940 voru ekki eins góðar og frá um 1920-30. En árið 1948 gerði hann stóra endurkomu með árángursríkasta söngleik hans Kiss Me, Kate. Það hlaut fyrstu Tony verðlaunin fyrir besta söngleikinn.
0 notes
Photo

Djuna Barnes var fædd 12. júní 1892 og látin 18. júní 1982. Hún var bandarískt skáld, leikskáld, blaðamaður, myndlistarmaður og smásögu rithöfundur. Verk hennar ná ennþá athygli til lesanda og eru þeir mjög spenntir og áhugasamir yfir verkum hennar. Hún er mest þekkt fyrir skáldsöguna hennar Nightwood (1936) sem er meistaraverk módernisma.
Barnes byrjaði feril sinn 1913 sem sjálfstæður blaðamaður og teiknari fyrir Brooklyn Daily Eagle. Snemma árið 1914 varð Barnes mjög eftirsóttur eiginleika blaðamaður, spyrjandi og teiknari. Vinnan hennar birtist fremst í dagblöðum borgarinnar og tímaritum. Seinna, voru hæfileikar hennar og tengingar áberandi við Greenwhich Village bohemians, sem veitti henni það tækifæri að birta prósa hennar, ljóð, myndir og einþáttunga í bæði Avant-garde bókmennta tímaritum og vinsælum slúðurblöðum, og birta myndskreytt ljóðabindi, Bókin af viðbjóðslegum konum (1915). Árið 1923 gaf hún út bók, safn af ljóðum, leikritum og smásögum, sem var endurútgefið seinna, með því að bæta við þremur sögum, A Night Among the Horses (1929), Ladies Almanack (1928) og Ryder (1929). Árið 1936 gaf hún út skáldsöguna Nightwood. Í október 1939, þegar hún var búin að lifa næstum því tvo áratugi í Evrópu, fór hún aftur til New York og gaf hún út seinasta stóra verk hennar, leikritið The Antiphon, árið 1958.
Skáldsögur eftir Djuna Barnes:
The Book of Repulsive Women
(1915)
Ryder (1928)
Ladies Almanack
(1928)
0 notes
Photo

Pablo Picasso
Pablo Ruiz y Picasso, einnig þekktur sem Pablo Picasso, var fæddur 25. október 1881 og látinn 8. apríl 1973. Hann var spænskur málari, höggmyndari, prentlistamaður, keramikmeistari, leikmyndahönnuður, skáld og leikskáld sem eyddi flestum fullorðins árum lífs síns í Frakklandi. Hann er einn af stærstu og áhrifamestu listamönnum 20. aldar, og hann er þekktur fyrir stofnun kúbísku hreyfingarinnar, uppfinning smíðaðra höggmynda, uppfinningu klippimynda, og fyrir fjölmarga stíla sem hann hjálpaði að þróa og kanna. Meðal frægustu verka hans eru frum-kúbíska Les Demoiselles d'Avignon (1907) og Guernica (1937) lýsing á sprengjuárásinni á Guernica af þýskum og ítölskum flugherum að undirlagi spænskum þjóðernissinnuðum stjórnvöldum á spænsku borgarastyrjöld. Picasso var rosalega frægur listamaður, hann átti fullt af listaverkum sem voru varðveitt, og eru mörg þeirra rosalega falleg og fræg.
0 notes
Photo

Francis Scott Key Fitzgerald var fæddur 24. september 1896 og látinn 21. desember 1940. Hann var bandarískur rithöfundur og smásögu höfundur, verk eftir hann eru talin vera fyrirmyndar velferðarríkja skrif Jazz aldarinnar. Hann var talinn vera einn flottasti bandaríski rithöfundurinn á 20. öld.
Fitzgerald er talinn vera aðili "Lost Generation" frá 1920. Hann lauk fjórum skáldsögum, sem voru This Side of Paradise, The Beautiful and Damned, The Great Gatsby, og Tender Is the Night. Sú fimmta er ókláruð skáldsaga, The Love of the Last Tycoon, hún var gefin út eftir að hann lést. Fitzgerald skrifaði einnig margar smásögur, sem meðhöndla þema af æsku og lofor��i ásamt aldri og örvæntingu.
Frægustu verk hans voru m.a:
Skáldsögur
This Side of Paradise (1920)
The Beautiful and Damned (1922)
0 notes
Photo

Ernest Miller Hemingway var fæddur 21. júlí 1899 og dó 2. júlí 1961. Hann var bandarískur rithöfundur, smásögu höfundur og blaðamaður. Stíll hans sem var hagkvæmur og áhrifamikill, sem hafði mikil áhrif á skáldskap 20. aldarinnar, á meðan ævintýralegt líf hans og opinber mynd hans höfðu áhrif á seinni kynslóðir. Hemingway framleiddi flestu verk sín um það bil á milli 1925 og 1955, og vann hann svo nóbelsverðlaun í bókmenntum árið 1954. Hann gaf út sjö skáldsögur, sex smásagnasöfn, og tvö fræðirit. Viðbótarverk voru þrjár skáldsögur, fjögur smásagnasöfn og þrjú verk án skáldskapar, og voru þau verk gefin út eftir að hann lést. Mörg verk hans eru talin sígild bandarískra bókmennta. Frægustu verk hans eru m.a. þessi: Three Stories and Ten Poems (1923) "Indian Camp" (1926) The Sun Also Rises (1926)
0 notes
Text
List
Fyrir mér er list eitthvað sem maður skapar. Það er til list í svo mörgu t.d myndlist, tónlist, hönnun, dans, leiklist og fl. List er þegar maður skapar eitthvað sjálfur frá sinni eigin hugmynd. Ég ætla að taka dæmi um list.
Hönnun
Hönnuðir búa til eitthvað eða skapa t.d húsgögn, föt og fl. Til að koma hönnun sinni á framfarir er stundum t.d tískusýning eða einhvernskonar hönnunarsýningu og að fara á sýningar er partur af menningunni okkar. Við fáum hugmyndir út frá öðrum hlutum því nú til dags er nánast allt.
0 notes
Photo

Nú til dags eru allir fastir með höfuðið ofan í símunum sínum. Í dag á maður minna einkalíf og maður deilir öllu með netvinum. Núna fer maður út að borða og í stað þessa að njóta matarins og að vera með vinum eða fjölskyldu þá tekur maður mynd og póstar á samfélagsmiðla og situr allan tímann í símanum. Þetta finnst mér ýkt og nánast bara fáranleg en sjálf tek ég þátt í þessu og fylgist með hvað aðrir eru að gera og þessar myndir eru flest allt glansmyndir af lífi fólks. Mér finnst þetta ekki góð þrónun hverning tæknivæðingin er að yfirtaka líf okkar.
0 notes
Photo

Fyrir mér er menning eitthvað sem samfélagið myndar. Að fara á hátíðir, listasöfn og margt fl. Menning getur verið mismunandi eftir t.d heimsálfum og löndum. Menningin á Íslandi er allt öðruvísi en menningin á Spáni og menningin í reykjavík öðruvísi heldur en menninig á sveitabæjum.
0 notes