doragunnsa89-blog
doragunnsa89-blog
Dóra Hrund Gunnarsdóttir
20 posts
Verkefnamöppur úr áfanganum Matur, menning og heilsa
Don't wanna be here? Send us removal request.
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
# 10 Spergilkálssúpa
Þessi uppskrift er úr bókinni Eldað í dagsins önn á bls. 85
Ég flysjaði kartöflur og lauk og skar niður í smáa bita. Ég skar líka spergilkálið í minni einingar. Svo bætti ég grænmetinu ásamt kjötkraftsteningi út í 7 dl af sjóðandi vatni og leyfði þessu að sjóða í um 15 mínútur. 
Tumblr media
Ég mældi 75 gr af rjómaosti í skál. Síðan setti ég grænmetið og soðið úr pottinum í matvinnsluvél þar til það var orðið silkimjúkt. Síðan hellti ég blöndunni aftur í pottinn og bætti rjómaostinum og basilikunni út í.
Tumblr media
Þegar rjómaosturinn var bráðnaður bætti ég mjólkinni við.
Mér fannst súpan mjög bragðlaus og þunn. Ég bætti við hana kjötkrafti, Aromat, hvítlauksdufti og svörtum pipar. Síðan þykkti ég hana með því að setja kartöflumöl og vatn í hristiglas og hella svo blöndunni út í. Þá þótti mér áferðin og bragðið betra. Það var mjög auðvelt að útbúa súpuna en ég er hrifnari af gamaldags uppbökuðum súpum. 
1 note · View note
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#9 Kjöt með karrýsósu
Þessi uppskrift er úr bókinni Eldað í dagsins önn bls. 22
Ég byrjaði á því að sjóða kjötið í stórum potti og fleyta froðunni ofan af vatninu. Síðan saltaði ég í pottinn. 
Tumblr media
Ég skar niður gulrætur, rófur og kartöflur. Það voru bara til fjólubláar kartöflur en mig hefur alltaf langað til þess að prófa þær og mér fannst þær svo fallegar á litinn að ég ákvað að nota þær bara. Ég ákvað að sjóða grænmetið í sér potti því ég var með alla fjölskylduna í mat og átti ekki nógu stóran pott til þess að sjóða kjötið og grænmetið saman. 
Ég geri vanalega uppbakaða karrýsósu en ákvað að fylgja uppskriftinni í þetta skiptið. Ég veiddi soð úr kjötpottinum og setti í minni pott. Síðan blandaði ég saman karrý, mjólk og hveiti í hristiglasi og hristi þar til blandan var kekkjalaus. 
Tumblr media
Ég síaði soðið, leyfði suðunni að koma upp á því og bætti svo karrýblöndunni út í og leyfði sósunni að þykkna. Ég bætti svo við sósuna kjötkrafti, aromat og smá slettu af smjöri, en það var ekki í uppskriftinni. Mér fannst hana vanta bragð. 
Tumblr media
Ég bar herlegheitin fram með hrísgrjónum en mér þykja þau ómissandi með karrýsósu og kjöti. Ég var mjög sátt með útkomuna og maturinn kláraðist nánast allur. Ég fékk þó komment um að þetta væri ekki mín venjulega karrýsósa og var vinsamlegast beðin um að vera ekkert að breyta til aftur. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#8 Saltkjöt og baunir
Þessi uppskrift er úr bókinni Eldað í dagsins önn bls. 15
Ég byrjaði á því að leggja baunirnar í bleyti daginn áður. 
Tumblr media
Síðan sauð ég baunirnar og veiddi froðuna ofan af þeim þegar þær fóru að sjóða. Ég ákvað að sjóða kjötið í sér potti því ég hafði aldrei soðið saltkjöt áður og var ekki viss hversu salt það væri. 
Tumblr media
Ég sauð einn bita með baununum. Síðan skar ég grænmetið niður í hæfilega bita. 
Tumblr media
Ég skar svo beikonið niður og bætti því út í pottinn. Ég bætti svo við soði úr pottinum út í baunirnar og síðast grænmetinu og leyfði því aði malla þar til það var orðið mjúkt og gott. 
Tumblr media
Ég hreinsaði kjötið og bætti því svo út í súpuna.
Þessi réttur heppnaðist vel að sögn skjólstæðings míns. Ég smakkaði hann en þótti hann ekki góður. Baunirnar og grænmetið voru ágæt en mér þykir saltkjöt bara alls ekki gott. En fyrst hann var sáttur er ég sátt.
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#7 Endurbætt íslensk kjötsúpa
Þessi uppskrift er úr bókinni Eldað í dagsins önn bls. 9
Ég sauð kjötið í  vatni og bætti svo við tveimur nautateningum og salti. Þegar kjötið fór að sjóða veiddi ég froðunni ofan af vatninu.
Tumblr media
Ég ákvað að taka kjötið upp úr pottinum, hreinsa fituna frá og bæta því svo aftur út í. Ég skar svo grænmetið niður í hæfilega bita, bætti súpujurtunum út í og svo grænmetinu og leyfði súpunni að malla.
Tumblr media
Ég er alin upp við að setja hrísgrjón út í kjötsúpu svo ég ákvað að gera það. Síðan hrærði ég súpuduftinu saman við kalt vatn í hristiglasi og bætti því svo út í súpuna. 
Tumblr media
Ég hef aldrei áður búið til íslenska kjötsúpu og tel að það hafi heppnast mjög vel. Mér þykir nýja útgáfan mun betri því hún er bragðmeiri. Ég hefði þó valið annað kjöt ef ég væri að gera súpuna aftur því það var heldur feitt og ég hefði viljað hafa meira eftir af kjöti þegar ég var búin að hreinsa það. En á heildina litið virkilega góð súpa. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#6 Töfrafiskur
Þessi uppskrift er úr bókinni Eldað í dagsins önn bls. 48
Í þennan rétt ákvað ég að nota ýsu, en hún er minn uppáhalds fiskur. Ég flysjaði eplin og sneiddi þau þunnt. Síðan stráði ég karrý yfir þau og glóðaði þau í ofni í um 5 mínútur. Á meðan hreinsaði ég og skar fiskinn og raðaði honum svo yfir eplin þegar þau komu út úr ofninum. Síðan saltaði ég yfir fiskinn. 
Tumblr media
Ég nota alltaf ostaskera þegar ég þarf að nota sneiðar af smjöri, mjög góð lausn. ég skar smjörsneiðar og lagði yfir fiskinn og glóðaði hann svo aftur í ofninum í um 10 mínútur. í lokin dreifði ég svo rifnum osti yfir og glóðaði í 2-3 mínútur til viðbótar. Með þessu bar ég fram ferskt salat með fetaosti og hrísgrjón. 
Tumblr media
Þessi réttur er eins einfaldur og hægt er. Ég viðurkenni þó að ég hafði ekki miklar væntingar til réttsins en hann kom skemmtilega á óvart. Ég er vanalega ekki hrifin af því að hafa epli í mat eða kökum, en þessi blanda var virkilega góð. Ég gæti vel hugsað mér að gera réttinn aftur en þá myndi ég nota meira smjör svo það myndi verða aðeins meiri sósa. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#5 Steiktar fiskibollur
Þessi uppskrift er úr bókinni Eldað í dagsins önn bls. 40
Ég byrjaði á því að skera fiskinn og laukinn í bita og svo setti ég allt í matvinnsluvél. Mér finnst bollurnar verða þéttari ef ég nota matvinnsluvél. 
Tumblr media
Ég bætti við kryddi og hveiti í blönduna þar til hún hafði réttan þéttleika. Ég steikti bollurnar upp úr smjörlíki og brúnaði þær vel. 
Tumblr media
Síðan setti ég nautakraftstening í vatn, lét suðuna koma upp og sauð svo fiskibollurnar. 
Ég veit fátt betra en karrýsósu og fiskibollur og ákvað að gera mína eigin sósu og baka hana upp. Það er ekki alveg jafn hollt en gerir hana svo miklu betri (að mér finnst).
Ég bræddi smjör og bætti út í það hveiti. Síðan notaði ég soðið til þess að bleyta upp í blöndunni og mjólk til skiptis þar til ég hafði náð réttri þykkt. 
Tumblr media
Ég nota vel af karrý í sósuna og mér þykir karrýblandan frá Flóru lang best í sósu. Ég nota líka svartan pipar og Aromat. Aromat þykir mér draga fram bragðið í sósunni. 
Tumblr media
í lokin bætti ég við smá slettu af rjóma og smá bita af smjöri en það gerir sósuna silkimjúka og góða. 
Með þessu hafði ég ferskt salat og hrísgrjón. 
Tumblr media
Enn og aftur var þetta frumraun mín í að útbúa eitthvað sjálf. Fiskibollur hef ég aldrei búið til sjálf en oft fylgst með mömmu minni búa þær til. Þær voru vel stífar og þéttar, alveg eins og ég vill hafa þær. Sósan klikkaði ekki og maturinn var bara virkilega góður. Það voru engin teljanleg vandræði við að útbúa þessa máltíð. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#4 Grænmetispottréttur
Þessi uppskrift er úr bókinni Við matreiðum bls. 175
Ég byrjaði á því að leggja svartar baunir í bleyti í 10 tíma.Ég skar laukinn nokkuð smátt og blandaði saman kryddunum. Cumin, kóríander og túrmerik. 
Tumblr media
Ég þurfti svo að sjóða baunirnar í saltvatni. Einnig skar ég grænmetið í bita og hafði allt klárt sem ég þurfti að nota. Ég notaði það sem ég átti til í ísskápnum, rófu, hvítkál, sæta kartöflu, kartöflur og púrrulauk. Ég steikti svo laukinn í olíu og mýkti hann og bætti svo kryddunum út í pottinn og leyfði því að malla smá. 
Tumblr media
Síðan bætti ég tómötum í dós og kjötsoði við. Ég notaði kjúklingatening. Ég átti til soðnar gulrætur og kartöflur í ísskápnum og ákvað að nota það líka. Þetta eru fjólubláar kartöflur á myndinni. 
Tumblr media
Ég bætti svo við tómatpúrru og soðna grænmetinu. Síðan soðnu baununum og smakkaði réttinn svo til. Ég bætti við hann dálítið af cumin og salti. 
Tumblr media
Rétturinn heppnaðist rosalega vel og var borðaður upp til agna, sem var eitthvað sem ég bjóst ekki við. Pabbi reyndar sagði að þetta væri enn betra ef það væri kjöt í honum. 
Það var auðvelt að útbúa réttinn og gott að geta nýtt það grænmeti sem til var í hann. Líka þetta soðna. Hins vegar voru baunirnar að valda mér dálitlu veseni þar sem ég hef aldrei áður eldað úr þurrkuðum baunum. Ég gerði mér ekki grein fyrir því hversu lengi þær þyrftu að liggja í bleyti og að þær þyrftu að sjóða svona lengi, enda hef ég bara notað baunir úr dós hingað til. En þetta fór allt saman vel og ég veit að ef ég er í tímaþröng þá nota ég dósabaunir næst. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#3 Kótilettur og brúnaðar kartöflur
Þessar uppskriftir eru úr bókinni Við matreiðum á bls. 118 og 155
Ég blandaði kryddum saman við raspið. Ég notaði hvítlaukspipar, Aromat, smá rósmarín og paprikukrydd. 
Ég þerraði sneiðarnar og þurfti ekki að snyrta þær neitt.
Tumblr media
Ég velti kjötinu upp úr hveiti, síðan eggjablöndu og að lokum kryddraspi og steikti það á pönnu upp úr smá olíu og smjöri þar sem ekki var til smjörlíki. 
Tumblr media
Ég steikti sneiðarnar við meðal hita á báðum hliðum og brúnaði þær. Síðan bætti ég við kaldri feiti á pönnuna og setti lokið yfir og leyfði sneiðunum að meyrna. 
Ég hafði aldrei brúnað kartöflur áður en oft séð það gert. Ég setti sykur og smjörlíki á pönnu og leyfði því að hitna og bráðna. Ég hafði of lítinn hita á pönnunni til að byrja með en þegar ég hækkaði hitann fóru hlutirnir að gerast. 
Tumblr media
Þegar sykurinn og smjörið höfðu bráðnað bætti ég rjómanum út á pönnuna og leyfði karamellunni að malla smá. Ég hafði soðið kartöflur og flysjað þær og bætti þeim svo út í karamelluna og velti þeim upp úr henni. 
Með þessu bauð ég upp á epla og bananasalat og ora grænar braunir. Salatið er einfalt, bananar og epli eru skorin í bita og svo er sýrðum rjóma hrært saman við.Magn fer eftir smekk hvers og eins. 
Tumblr media
Mér gekk mjög vel að elda þessa máltíð en viðurkenni að ég var ansi stressuð þegar ég byrjaði. Ég er ekki hrifin af kótilettum og borða helst ekki brúnaðar kartöflur. Ég var dauðhrædd við sjóðandi heita karamelluna en þetta fór nú allt saman vel. Ég eldaði þessa máltíð hjá skjólstæðingi mínum og hann var hæst ánægður með matinn. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#2 Smásteik (gúllas) og hrærðar kartöflur
Þessar uppskriftir eru úr bókinni Við matreiðum á bls. 122 og 155
Ég fékk dásamlegt gúllas beint frá býli úr Vallakoti í Reykjadal. Ég byrjaði á að þerra kjötið en það þurfti ekkert að snyrta það til. Síðan velti ég því upp úr hveiti, salti og pipar.
Tumblr media
Ég hellti olíu á pönnuna og leyfði henni að hitna vel. Síðan bætti ég kjötinu á pönnuna og brúnaði kjötið vel. Ég skar niður gulrætur og lauk smátt og bætti út á pönnuna. 
Tumblr media
Ég bætti við kjötsoði, merían og lárviðarlaufi og leyfði þessu að malla með lokið á þar til kjötið var orðið meyrt og grænmetið soðið. 
Ég flysjaði kartöflurnar og sauð þær í saltvatni þar til þær voru orðnar mjúkar. Síðan hellti ég af þeim vatninu (geymdi smá af því til að nota síðar) og hrærði þær með handþeytara. 
Tumblr media
Ég bætti út í hana sykri, mjólk og smá af vatninu af kartöflunum. Mjólkurmagnið í uppskriftinni var heldur mikið að mínu mati og mér fannst músin aðeins og þunn. En það er líka smekksatriði.
Tumblr media
Ég bar réttinn fram með fersku salati og nýbökuðu snittubrauði. Kjötið var lungamjúkt og rétturinn virkilega góður. Ég bætti aðeins af kjötkrafti og pipar í hann því ég er meira hrifin af bragðmiklum mat. Þetta gekk bara mjög vel en að mínu mati hefði kartöflumúsin mátt vera örlítið þykkari. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
Verkefnamappa 2 #1 - steiktur fiskur og brúnaður laukur
Uppskriftin er úr bókinni Við matreiðum á bls. 91
Ég valdi að nota brauðrasp til þess að hjúpa fiskinn með því mér þykir það mjög gott.. Ég kryddaði brauðraspið með salti, pipar og hvítlauksdufti. Ég notaði þorskbita og velti þeim upp úr eggjablöndu fyrst til þess að raspið myndi festast betur við. 
Tumblr media
Ég hitaði smjörlíki á pönnu og steikti fiskinn á báðum hliðum við meðalhita. Hitinn dreifðist dálítið ójafnt á pönnunni og því voru tvö stykki örlítið ljósari en hin. Raspið varð stökkt og gott af steikingunni. 
Ég skar svo lauk í þunnar sneiðar og steikti hann upp úr smjörlíki. Á meðan setti ég fiskinn á fat og inn í ofn á 80°C til að halda honum heitum. Ég steikti laukinn þar til hann var farinn að brúnast. 
Tumblr media
Þegar laukurinn hafði brúnast hellti ég örlitlu vatni yfir pönnuna og þá karamellaðist hann og varð dúnmjúkur. Ég hef aldrei áður heyrt um að bæta vatni á pönnuna en mun nýta mér það í framtíðinni. Ég tók svo fiskinn út úr ofninum og hellti lauknum yfir og bar það fram á fati. Með fisknum bauð ég upp á íslenskar soðnar kartöflur og kokteilsósu, en mér finnst kokteilsósa ómissandi með steiktum fiski. 
Það gekk mjög vel að steikja fiskinn og hann bragðaðist mjög vel. Það eina sem ég hef út á hann að setja var að tvö stykki urðu ekki alveg jafn vel brúnuð og hin. Þetta er svosem ekki í fyrsta skipti sem ég steiki fisk svo þetta gekk bara mjög vel. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Video
youtube
Naan brauð Dóra Hrund - verkefni #7 í matur, menning og heilsa
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Video
youtube
Pönnukökur Dóra Hrund - verkefni #1 í matur, menning og heilsa
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#10 Bananabrauð
Uppskriftin er úr bókinni Af bestu lyst á bls. 32 3 - 4 þroskaðir bananar 2 og 1/2 dl All Bran 1 dl matarolía 2 dl sykur 2 egg 5 dl hveiti 1 og 1/2 tsk lyftiduft 1/2 tsk salt 1 dl grófsaxaðar hnetur Ég stappaði saman bananana í skál. Ég hafði flysjað þá og hent þeim í frysti til þess að eiga og baka bananabrauð úr þeim því þeir voru orðnir ansi ljótir. Þeir voru dálítið blautir þegar þeir þiðnuðu svo ég hellti smá vatni af þeim. Síðan bætti ég All Bran morgunkorninu saman við og hrærði í með gaffli og leyfði morgunkorninu að linast. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég þeytti saman í annarri skál olíu, eggjum og sykri og blandaði því svo saman við bananahræruna og hrærði enn með gaffli. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég blandaði saman restinni af þurrefnunum og hnetunum í skál. Ég muldi hneturnar í blandaranum mínum og þær urði ansi fínsaxaðar við það. Svo bætti ég þurrefnunum út í og hrærði allt vel saman, enn með gafflinum. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég setti deigið í smurt silikonform og bakaði við 160°C (uppskrift segir 180°C) í um klukkustund. Síðan kældi ég brauðið vel áður en ég skar það. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Formið var allt of lítið fyrir þetta brauð svo það varð heldur veglegt. Það leit mjög vel út en mér þótti það ekkert rosalega bragðgott. Þetta er vissulega hollari uppskrift að bananabrauði en ég er vön að gera, en mig grunar að það geti líka verið því ég átti bara cashew hnetur til heima. Mér finnst þær oft ekki passa með hverju sem er. Brauðið færði ég heimilisfólkinu á sambýlinu sem ég vinn á og þau voru hæst ánægð með það svo ég var sátt. Brauðið var einstaklega auðvelt og innihaldsefnin einföld. Það dugði mér að hræra það með gaffli og það kom bara vel út þó ég hefði viljað hafa það sætara. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#9 Sólkjarnabrauð
Uppskriftin að þessu brauði er í bókinni Af bestu lyst sem er ein af mínum uppáhalds matreiðslubókum. Hún er á bls. 30. 25 g pressuger 2 og 1/2 dl volgt vatn 1/2 tsk salt 1 msk sykur 3/4 dl léttristuð sesamfræ 3/4 dl léttristuð sólblómafræ 1 og 1/2 dl heilhveiti 4 dl hveiti 2-3 msk matarolía egg til penslunar Skraut : sólblómafræ Ég átti ekki til pressuger og gat hvergi fengið það á Húsavík. Þannig að ég notaði google vin minn sem sagði mér að 25 g pressuger jafngiltu 2,5 tsk af þurrgeri. Þannig ég þurfti að nota það sem ég hafi við höndina í þetta skipti. Ég hef alveg bakað úr pressugeri og mér finnst brauðið verða alveg sérlega gott ef það er notað. 
Ég blandaði saman volgu vatni og gerinu í skál og lét það standa í 10 mínútur. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég blandaði saman í skál öllum þurrefnunum en skildi hluta hveitisins eftir í skál. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég blandaði svo olíunni út í gerblönduna og blandaði vökvanum saman við þurrefnin og hnoðaði vel í hrærivélinni með deigkrók. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég plastaði deigið og lét það hefast á lýjum stað í um klukkustund. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég skipti svo deiginu í þrjá jafna hluta og gerði kúlu úr einum þeirra. Ég mótaði minni bollur úr hinum hlutunum og raðaði í kring um stóru kúluna. Svo leyfði ég deiginu aftur að hefast undir hreinu viskastykki. 
Tumblr media
Síðan penslaði ég brauðið með eggi og skreytti stóru kúluna með sólblómafræjum. 
Tumblr media Tumblr media
Ég bakaði brauðið á blæstri í miðjum ofninum á um 180°C (uppskrift segir 200°C) í rétt rúman hálftíma, eða þar til það var orðið gullinbrúnt. 
Tumblr media Tumblr media
Brauðið var dúnmjúkt og létt og hentaði rosalega vel með súpunni sem við vorum með í kvöldmat. Ég átti ekki til nóg af sólblómafræjum svo ég notaði fræblöndu og graskersfræ í staðinn og mér þótti það sko alls ekki koma að sök. Það eina neikvæða við þetta brauð er hversu tímafrekt það er þar sem deigið þarf fyrst að hefast í klukkutíma og svo aftur í hálftíma. En ef maður hefur nægan tíma þá er þetta frábært brauð til að bjóða upp á í kaffinu eða t.d. með rjúkandi heitri súpu. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#8 Fljótlagað brauð
Uppskriftina má finna í bókinni Eldað í dagsins önn á bls. 119 10 dl hveiti 3 dl heilhveiti 1 msk sykur 2 dl sólblómafræ 1 og 1/2 dl sesamfræ 1/2 dl hörfræ 2 msk lyftiduft 1 tsk natron 1 tsk salt 2 msk matarolía 5 dl léttsúrmjólk 2 og 1/2 dl vatn Ég stillti ofninn minn á 160°C en uppskriftin segir 180°C.
Ég blandaði öllum hráefnunum í hrærivélarskálina, þurrefnunum fyrst og svo vökvanum og hrærði með deigkróknum. Í uppskriftinni er léttsúrmjólk en ég nota alltaf feitari mjólkurvörur því þær henta mér betur. Þetta deig þarf að passa að hræra ekki of mikið því þá getur brauðið orðið of seigt. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
 Í upp
 Í upps
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég smurði tvö jólakökuform úr silikoni og skipti deiginu í helminga. Síðan penslaði ég brauðið með vatni og bakaði það í ca. 50 mínútur. Ég setti ofnplötu fyrir ofan brauðin þegar bökunartíminn var hálfnaður því ég vildi ekki hafa þau of dökk. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Þetta er með auðveldari brauðum sem ég hef bakað. Það þarf ekkert að hefast en bökunartíminn er dálítið langur. Það er þétt í sér og gott. Bæði brauðin hurfu fljótt þar sem svona lyftiduftsbrauð eru uppáhalds brauðin hans pabba svo það má segja hann hafi borðað þetta nánast í öll mál. Ég mun pottþétt baka þetta brauð aftur. 
Tumblr media Tumblr media
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#6 Hversdagsbrauð
Uppskriftina að þessu brauði má finna í bókinni Eldað í dagsins önn á bls. 112.
4 dl heilhveiti ca 5 dl hveiti 2 og 1/2 dl heitt vatn 2 og 1/2 dl köld mjólk  2 msk matarolía 3 tsk þurrger 1 tsk salt 1 egg 1 dl sesamfræ
Ég byrjaði á því að taka frá 1,5 dl af hveiti og 0,5 dl af heilhveiti og setja sér í skál. Síðan blandaði ég saman í hrærivélarskálina heitu vatni úr krananum (við erum með eigin vatnshitara svo ekkert hitaveitubragð ef af vatninu) og kaldri mjólk. Ég nota alltaf nýmjólk en í uppskriftinni stendur léttmjólk. Feitari mjólkurvörur henta mér og mínum maga betur. Síðast bætti ég matarolíunni út í blönduna sem var um 37°C. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Síðan bætti ég þurrefnunum út í nema fræjunum. Ég hrærði deigið í hrærivél með deigkrók til þess að auðvelda mér vinnuna. Síðan bætti ég hveitinu sem ég hafði tekið frá við hægt og rólega þar til deigið var vel hnoðað og festist ekki við skálina.
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég mótaði svo langt flatt brauð og setti í smurt silikon jólakökuform. Ég penslaði það með eggi og stráði svo fræjunum yfir það. 
Tumblr media Tumblr media
Ég setti það síðan inn í kaldan ofninn og stillti hann á 180°C eins og uppskriftin sagði til um. Brauðið hefast á meðan ofninn hitnar. Ég bakaði það í 45 mínútur eins og uppskriftin sagði til um og var hissa á að þurfa ekki að lækka á ofninum en ég var búin að búa mig undir það. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Brauðið heppnaðist rosalega vel. Mögulega hefði ég samt þurft að setja það í aðeins stærra form því það blés gjörsamlega út og varð mjög veglegt og sneiðarnar stórar.  Brauðið var mjúkt og gott og mjög bragðgott. Ég fór með afganginn af því í vinnuna mína á sambýlinu og þau voru mjög hrifin af því og ég þurfti að deila uppskriftinni með samstarfskonum mínum. 
Það gekk rosalega vel að baka brauðið, það er einfalt og fljótlegt og þægilegt að það hefi sig í ofninum.  Það er sniðug aðferð sem ég hef ekki séð áður.  Hrærivélin auðveldar mér líka verkið og það eru ekki mörg innihaldsefni. Ég myndi hugsanlega sleppa fræjunum þar sem mér þykja sólblómafræ ekkert rosalega góð. 
0 notes
doragunnsa89-blog · 8 years ago
Text
#5 Enskar skonsur
Þessi uppskrift er úr bókinni Eldað í dagsins önn, bls. 102.  200 g hveiti 50 g heilhveiti 2 tsk lyftiduft 2 dl léttmjólk (eða rúmlega það) 1/2 dl matarolía
Í þessari uppskrift segir að stilla eigi ofninn á 220°C. Ég stillti minn ofn á 200°C og það dugaði fínt, hann er svo kraftmikill. 
Ég blandaði þurrefnunum saman í skál. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Síðan blandaði ég saman við mjólk og matarolíu og hrærði allt létt saman. Uppskriftin segir léttmjólk en ég nota eingöngu nýmjólk og feitari mjólkurvörur þar sem ég þoli þær betur. Í þessari uppskrift á að reyna að hnoða sem minnst svo skonsurnar verði loftkenndar og mjúkar. Annars geta þær orðið seigar. 
Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Ég flatti deigið út á sílíkon mottu með kökukefli í ca 2 cm þykka köku. 
Tumblr media
Síðan notaði ég glas og mótaði hringlaga skonsur úr deiginu. 
Tumblr media
Ég lagði skonsurnar á bökunarplötu klædda bökunarpappír og penslaði þær með mjólk. 
Tumblr media Tumblr media
Ég bakaði þær á efstu rim í ofninum í um 12 mínútur. Uppskriftin segir 15 mínútur en ég vildi ekki að þær yrði of dökkar. 
Ég kældi þær svo á bökunargrind og smakkaði eina þegar þær voru orðnar volgar. 
Tumblr media Tumblr media
Það gekk mjög vel að baka skonsurnar og ég átti ekki í neinum  vandræðum með það. Ég hins vegar er mögulega of mikill salt fíkill en mér fannst vanta allt salt í uppskriftina. Mér þóttu skonsurnar heldur bragðlitlar, en þær voru fínar með smjöri og osti. Ég er nokkuð viss um ég myndi bæta við þær smá salti ef ég baka þær aftur. 
0 notes