20 ára stúdent og bý í Grafarholti. Er núna í Almennri hönnun að undirbúa mig fyrir Listaháskóla. Ég hef bullandi áhuga á hönnun, teikna, mála, hreyfingu og heilsu :)
Don't wanna be here? Send us removal request.
Text
Fluttningar, looksins internet o.fl. :)
Jæja, ég er búin að vera nánast netlaus seinustu 2-3 vikur! En er loks komin með gott netsamband. Ég flutti í vikunni til Ásdísar og verð þar örugglega í smá tíma :)
Það er búið að vera frekar mikið að gera seinustu vikur hjá mér. Er búin að vinna hverja helgi núna frá því 14.9.13 og er að fara að vinna næstu 2 helgar. Einnig er stundatafla mín frekar þétt og mikil.
Og svo er ég að vinna alla mánudaga og þriðjudaga frá 19.30 - 23.30, þannig ég á það til að vera mjög upptekin.
En já, mér gengur vel í skólanum. Ég er bara búin að fá 10 í einkun nema tvisvar 8,5.
Föstudaginn 13. sept þá missti ég lang-afa Bjössa, eða eins og ég kallaði hann alltaf ,,afi í Kefl". Það var alltaf æðislegt að koma við í Keflavík og síðar meir í Reykjanesbæ og kíkja á afa. Hann var listrænn, duglegur og góður maður og lifði 88 ár. Já ekki allir sem eru það ríkir að hafa átt 3 langafa og 4 langömmur.
En nú er meistaramánuður og ég ætla að taka hann með trompi. Það verður hreyfing, heilsa, sparnaður, jákvæðni og góð framkoma í fyrirrúmmi!:) Ég ætla mér líka að reyna að blogga oftar.
Tók morgunæfingu í morgun, ca. 45 mínútur. Ég fékk einnig út úr SJL103 prófinu og fékk 8.5 út úr því. Eins og þið sjáið fyrir ofan þá er það myndin í vinsta horninu sem ég teiknaði og skyggði. Myndin við hliðiná er útkoman úr prófinu, s.s. ljósrit af myndinni minni og svo teiknaði kennarinn línur eins og kannan sjálf leit út í réttum hlutföllum. Fáum ekki að nota reglustikur eða neitt í svona, heldur sitjum við í sérstakri fjarlægð frá hlutnum og notum blýant eða blað til þess að mæla.
Ætla að henda hérna inn nokkrum myndum og verkum sem ég hef verið að vinna við:
Kvöldteikn sem ég gerði um daginn

Búið til úr einu A3 kartoni.. virkar auðvelt eeeen ég eyddi miklum tíma í þetta :)! Mátti ekkert bæta við/líma við blaði, heldur þurfti ég að mæla út og hafa þetta sem eina heild, skera og búta til ,flipa' til að líma saman.
Ætla að segja það gott í bili, - Eydís Sunna :)
1 note
·
View note
Text
Hollustu ís :)
Þar sem ég er algjör nammigrís þá varð ég að finna eitthvað til þess að ég geti nartað af og til í á kvöldin. Ég prufaði fyrst að setja banana og jarðaber í fyrstir og reyndi að gera ís úr því. En svo ákvað ég að prufa að setja súkkulaði whey protein með og þá kom út þessi vel heppnaði og gómsæti ís :)
Það sem þarf er:
Banani
Jarðaber
Mangó
Súkkulaði whey prótein
Skyr.is vanillu sykurskert
Skerð ávextina niður og setur í frystir.
Þegar ávextirnir eru orðnir frosnir þá setur maður ávextina í blender ásamt smávegis af skyri.
Þegar þetta hefur blandast vel þá setur maður eina skeið af whey próteini út í og blandar þessu vel.
Svo setur maður þetta í box og setur þetta í frystir :)
Fyrst það var helgi þá skar ég niður súkkulaðistrimla og setti ofaní. Svo er auðvitað hægt að prufa mismunandi ávexti og prótein :)
xx
Eydís Sunna :*
(gamalt blogg síðan 2011)
0 notes
Text
Sunnudagur til sælu :)
Jæja hef ákveðið að byrja með blogg að nýju :)
Ég ætla að henda inn færslum sem tengist mínu lífi og áhugamálum t.d. um hreyfingu og heilsu, verkum sem ég geri í skólanum eða heima (teikningar, málverk, tölvuvinnsla o.fl.) og bara því sem mig mun detta í hug.
Ég ákvað í skyndi í sumar að skrá mig í Tækniskólan í almenna hönnun hraðferð. Ég hef alveg frá því í 8. eða 9. bekk langað að læra arkitektúrinn og uppá síðkastið hefur grafísk hönnun heillað mig svolítið.
Þeir áfangar sem ég er að taka núna eru:
Almenn hönnun (AHL 103).
Myndræn tjáning (AHL 213). Tímunum er skipt í tvennt; Í fyrri tímanum er lært á forritið Illustrator og seinni tímanum erum við að ýmist málað, teiknað o.fl.
Teikning vinnu (AHL 123). Þessi áfangi er í raun grunnteikning 103 og 203.
Almenn hönnunarsaga (AHS 203).
Tölvuteikning (TTC 103). Þar er ég að læra að teikna í AutoCad.
Skynjun, túlkun og tjáning (LIM 113).
Sjónlist (SJL 103).
Hérna að neðan er t.d. ein teikning sem ég gerði í SJL103, en hún er ekki alveg klár :)
Endilega followið mig á Instagram (eydisaegis)
0 notes