Don't wanna be here? Send us removal request.
Video
youtube
Áhugaverðar staðreyndir um ýmislegt
0 notes
Text
Tækni og tómstundir
Hér er verið að fjalla um sambandið á milli tækni og tómstunda í tengslum við tölvutækni og notkun internetsins. Mikið af rannsóknum hafa verið gerðar varðandi samskiptatækni en minna af rannsóknum sem taka einnig mið af tómstundum í þessu samhengi. Skoðaðar eru þau áhrif sem tæknin hefur haft á tómstundaiðju.
Linkur á grein
0 notes
Text
iStart hugbúnaðurinn
iStart er sjálfvirkur, netlægur hugbúnaður ætlaður til gagnvirkra þjálfunaræfinga í lestri. iStart hugbúnaðurinn er byggður á SERT lestrarþjálfunartækni sem var þróuð til þess að auka skilning nemenda á efri stigum á fræðilegum textum.
Rannsókn var gerð á 39 nemendum þar sem meðalaldurinn var 12,7 ár. Nemendur þessir voru færir til lesturs en skildu ekki fyllilega innihald þess sem þau lásu og gekk rannsóknin út á það að athuga hvort nemendur þessir myndu bæta lesskilning sinn með því að nota lestrartækniaðferðir SERT með hugbúnaðinum iStart.
SERT byggir á fimm lestrartækniaðferðum:
1. Mat á eigin skilningi á því sem lesið er (e. comprehension monitoring)
2. Að umorða texta til sjálf-skilnings (e. paraphrasing)
3. Skilningur á samhengi textans (e. bridging-inference)
4. Ályktunarhæfni (e. prediction)
5. Að nota almenna þekkingu eða eigin reynslu til þess að skilja textann (e. elaboration)
Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að ávinningur af því að nota lestrartækniaðferð réðist að töluverðu leiti af því hversu mikilli lestrartækni nemendur bjuggu yfir áður. Nemendur sem bjuggu yfir lakari lestrartækni gengu mun betur með svokallaðar staðreyndarspurningar eftir að þeir fengu þjálfun með iStart. Hins vegar voru þeir nemendur sem höfðu góða lestrartækni fyrir töluvert hæfari til þess að svara spurningum sem tóku mið af samhengi textans. Ljóst er að allir nemendur höfðu ávinning af því að nota hugbúnaðinn þó það væri ekki á sama hátt.
Linkur á rannsóknina
0 notes