Velkomin á litla matarbloggið mitt, vonandi hefurðu gaman af og vonandi sérðu eitthvað sem kveikir nýjar hugmyndir hjá þér!.
Don't wanna be here? Send us removal request.
Text
Nú munu einhverjir verða hissa…en ég prófaði mig áfram með bakað grænkál til að búa til hollara snakk. Ég er allur í þessu þessa daganna, djúpsteikt blómkál, bakað brokkólí með chipotle og chilli og svo núna grænkálsflögur.

Ég smakkaði þetta nýlega og varð mjög skotinn í þessari pælingu og þetta er ekkert sérlega flókið.
Eina sem þú þarft:
1 poka af grænkáli
Ólívuolíu
Krydd
Lykillinn hérna er að rífa stilkana af kálinu og rífa það svo í hæfilegar stærðir. Svo þarf að skola kálið og þurrka það vel á eftir. Þú vilt ekki fá soggí flögur.
Svo set ég smá olíu í skál og bæti smá chilliolíu, þessari einföldu ódýru sem fæst i Krónunni:

Hún er merkilega góð. Kálið fer ofaní skálina og ég nudda olíunni vel í laufin.
Þessu næst raða ég flögunum á bökunarpappír í eitt lag, passa að þær liggi ekki ofan á hvor annarri…aftur, þú vilt ekki soggí flögur.

Svo sáldra ég kryddblöndu sem samanstendur af salti, hvítlaukssalti, basil og reyktri papriku. Smá svindl í þessu þetta hvítlaukskrydd sem fæst í Costco, það gengur við allt.
Svo baka ég þetta samtals í 30 mín við 150°C en eftir 15 mínútur sný ég kálinu. Eftir bökun læt ég það bíða í ca 5 mínútur áður en hægt er að bera það fram.

Hér gildir að sjálfögðu að það þarf að fylgjast vel með ofninum, ef flögurnar byrja að brenna, ertu í veseni. Ef þær eru ekki orðnar stökkar eftir 30 mín…bíddu aðeins lengur.

Grænkálsflögur Nú munu einhverjir verða hissa...en ég prófaði mig áfram með bakað grænkál til að búa til hollara snakk.
0 notes
Text
Krókettuvöfflur
Ofur einfalt og hægt að nota sem meðlæti með næstum hverju sem er, út á salat eða sem snarl.

Þú þarft bara tvennt:
Frosnar krókettur
BBQ sósu
Króketturnar eru afþýddar annað hvort með því að láta pokann standa við sotfuhita í ca 1 klst….nú eða skella þeim í örbylgjuofninn í 90 sekúndur.

Svo er bara að raða ca 10 stk til að gera eina vöfflu, pressa vel saman í ca 3 mínútur, setja svo BBQ sósu…
View On WordPress
0 notes
Text
Að gera gott foccacia er eiginlega jafn auðvelt og að gera pizzadeig. Bara nota aðeins meiri olíu, krydd og láta hefast alla vega tvisvar. Hér er t.d. uppskriftin mín að Friggin Foccacia.
Ég átti ekkert durum hveiti að þessu sinni og notaði bara venjulegt hveiti, annars er þetta einhvern veginn svona:
5dl hveiti
1 pk þurrger
1 msk sykur
1 bolli volgt vatn
ca 1 bolli ólívuolía
Hvítlaukskrydd, basil, oregano eða annað sem þig langar í
Ég hnoða þetta duglega í vél og lauma svo skálinni inn í ofn á lægsta styrk í ca 30 mín. Þá tekur deigið vel við sér, þá hnoða ég í höndunum og bæti við smá hveiti og olíu og hnoða þar til það verður alveg…mushy, slétt og fínt, þá set ég það aftur í ofninn í skálinni í ca 15 mínútur, hnoða aftur létt og þá erum við tilbúin í muffin formið.
Ég gerði tvenns konar fyllingar, annars vegar pizzusósu, pepperoni og mozzarella og hins vegar pesto frá Vínbóndanum og mozzarella.

Ég tók smá hluta af deiginu til hliðar sem ég notaði sem topp. Setti deigkúlu í olíusmurt formið og pressaði aðeins niður. BTW deigið er enn að hefa sig á þessum tímapunkti, svo fór fyllingin í og þá toppurinn. Svo setti ég chilli olíu og þurrkað basil yfir og stakk í gegnum allt með gaffli.
Bakað í 15 mínútur á 200°C á yfir og undir hita og svo blástur í 3-4 mínútur, þá verður toppurinn stökkur en miðjan mjúk.


Fyllt foccacia muffins Að gera gott foccacia er eiginlega jafn auðvelt og að gera pizzadeig. Bara nota aðeins meiri olíu, krydd og láta hefast alla vega tvisvar.
0 notes
Text
Ég hef elskað Royal búðinga frá því ég var pínupínu lítill.
Þegar ég smakka þá i dag þá fyllist ég einhverri nostalgíu, allt er óbreytt, engin nýsköpun, ekkert diet-dæmi, ekkert prótein rugl, bara hardcore snaróhollur instant búðingur.
Umbúðirnar eru næstum þær sömu og fyrir 30 árum, þetta er svo klassískt, kitch, það þarf enga nýsköpun hér, eins og segir á pakkanum: “For Scumpious deserts everytime…Always Reach For Royal” hversu geggjað slagorð!?
Ég fékk einu sinni tækifæri til að heimsækja verksmiðjuna þeirra á Blönduósi, já ég sagði Blönduósi. Sama verksmiðja og framleiðir Vilko súpur og Prima krydd. Fyrirtækið heitir Flóra og er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfrækt með minimalískum hætti frá árinu 1935. Það er eitthvað ótrúlega sjarmerandi við þetta dæmi.
Þegar ég var krakki var yfirleitt boðið uppá klassískan karamellu og súkkulaðibúðing með þeyttum rjóma, bönunum og kókosmjöli. Yfirleitt óskaði ég mér að ég ætti töfraskál sem virkaði þannig að hún tæmdist aldrei, endalaus búðingsskál…góð hugmynd.
Svo allt í einu árið 2020 dettur þeim í hug að koma með nýja vöru á markað…saltkaramellu búðing. OG HANN ER GLORIOUS.
Galdurinn við Royal er einfaldleikinn, þetta er bara hálfur líter af mjólk, duftið útí, hræra og steinþegiðu! Það er skýrt tekið fram á pakkanum að maður eigi að blanda akkúrat hálfum líter saman við innihald pakkans….en hér kemur stóra leyndarmálið…hættu að lesa hér ef þú vilt ekki vita meira…
Í staðinn fyrir 500ml af mjólk…prófið að setja bara 400ml í staðinn, búðingurinn hleypur betur og verður bragðsterkari og áferðarfallegri og heimur þinn mun ljóma!
Ég notaði þetta trikk á súkkulaði og saltkaramellubúðing fyrir fjölskylduna, skellti smá þeyttum rjóma með og fínt skornum vel þroskuðum banana til að kitla nostalgíuna. Svo til að halda neistanum sáldraði ég muldum pistasíum yfir.
Börnin elska Royal, fullorðnir elska Royal.
ATH. Þessi færsla er ekki kostuð á neinn hátt, ég raunverulega elska Royal.
Royal leyndarmálið Ég hef elskað Royal búðinga frá því ég var pínupínu lítill. Þegar ég smakka þá i dag þá fyllist ég einhverri nostalgíu, allt er óbreytt, engin nýsköpun, ekkert diet-dæmi, ekkert prótein rugl, bara hardcore snaróhollur instant búðingur.
0 notes
Text
Hér er á ferðinni mjög beisik bananabrauð sem ég tvíka aðeins til með hnetusmjöri og möndludropum, það gefur brauðinu enn meiri kökublæ.

Börnin elska bananabrauð í nesti og það er svo ótrúlega hentugt að skera það niður meðan það er volgt og frysta sneiðarnar.
Þú þarft:
75gr sykur
75gr púðursykur
2 egg
1 tsk möndludropa
2 msk gróft hnetusmjör
3 gamla banana
220gr hveiti
0,5 tsk lyftiduft
0,5 tsk matarsódi
1 tsk kanill
0,5 tsk salt
Sykur, púðursykur og egg er þeytt saman þar til það er létt og ljóst. Þá eru möndludropar og hnetusmjör sett saman við og hrært…NB það er lang einfaldast að gera þetta í hrærivél, leyfa henni bara að malla á milli atriða. 3 stappaðir bananar eru saman við og hrært vel. Restin af þurrefnunum svo blandað saman og sett í rólegum útí. Áferðin á að vera pínu slepjuleg.
Þetta er svo sett í brauðform og bakað í ca 45mín við 175°C.
Mér finnst reyndar alltaf best að smyrja það með miklu smjöri og osti meðan það er enn heitt og drekka mjólk með klökum með.

Beisik bananabrauð Hér er á ferðinni mjög beisik bananabrauð sem ég tvíka aðeins til með hnetusmjöri og möndludropum, það gefur brauðinu enn meiri kökublæ.
0 notes
Text
Bandarísk matarblogg eru uppfull af comfort food þessa daganna. Þá erum við að tala um smjördeig, beikon, bráðinn ost, matarmiklar súpur og alls konar gúmmelaði.
Beikontvistur er mín útgáfa af þessari uppskrift hér.
Þetta er einfalt og fljótlegt og er tilvalið að bera fram í t.d. kokteil- eða jólaboðum.
Þú þarft:
Smjördeigsrúllu
Einn pakka beikon
Eina dós af jalapeno (má auðvitað líka nota ferskt)
1 Snowdonia Black Bomber cheddar ost (nota ca 60% af honum)
Smá BBQ sósu
1 egg
Mér finnst best að grilla beikonið, þannig næ ég réttu áferðinni, crispy og með smá bruna. Rúlla út smjördeiginu og smyr það með BBQ sósu. Svo rífur maður cheddar ostinn niður og setur ca. helminginn af honum yfir. Beikonið er svo klippt í litla bita og dreift yfir, svo koma jalapeno sneiðarnar. Meiri ostur og svo leggur maður þetta saman og þrýstir vel niður. Svo nota ég pizzahníf og sker í hæfilega strimla. Sný eða tvista uppá strimlana og raða á plötu og pensla með egginu. Þetta bakar maður svo á blæstri við 200°C í ca 12 mínútur.
Það er hægt að fá Snowdonia ostana í næstum öllum stórmörkuðum í dag, mér finnst þessi svarti (Black Bomber) bestur en þeir eru reyndar allir góðir.
Það er hrikalega gott að setja smá piripiri sósu yfir og svo hentar þetta einstaklega vel með ísköldum öl.
Beikontvistur Bandarísk matarblogg eru uppfull af comfort food þessa daganna. Þá erum við að tala um smjördeig, beikon, bráðinn ost, matarmiklar súpur og alls konar gúmmelaði.
0 notes
Text
Haustlægðirnar sigla yfir landið ein af annarri. Það er ekkert betra á stormasömum sunnudegi en að baka, hugleiða, hlusta á ljúfan eldhúsjazz og smátt og smátt fyllist húsið af kanil- og vanilluilm og um leið og síðasta platan kemur úr ofninum hellir maður uppá. Oooohh.
Hér er ljómandi playlisti fyrir eldhúsbrasið:
Ég hreinleg elska kanilsnúða. Hér kemur mjög einföld uppskrift sem ég tvíkaði aðeins til með því að gluða pistasíukremi inn í þá í viðbót við smjör/kanil/púðursykurs kombóið. Ég keypti ansi margar krukkur af þessu kremi á Ítalíu síðasta sumar en ég veit að Jói Fel selur svipað frá Nicolas Vahé sem er ofsalega gott.

Þú þarft:
500gr hveiti
100 gr sykur
1 pakki þurrger
2 tsk salt
2 tsk vanilludropar
1 dós KEA skyr með kaffi og vanillu
2 egg
80 gr mjúkt smjör
Fylling:
100 gr bráðið smjör
3 msk púðursykur
1 msk kanill
1 dós pistasíukrem
Maður blandar saman þurrefnunum og svo fer restin útí eitt af öðru, allt í rólegheitunum. Deigið er látið hefast í 30 mínútur og svo er hnoðað duglega aftur og flatt út.

Ég nota þetta KEA skyr sem er í uppáhaldi hjá mér núna, slær jafnvel út grísku kaffijógúrtina frá Örnu.

Smjör, púðursykur og kanill er hrært vel saman þar til það er mjúkt, þá er það penslað á deigið, svo er pistasíukreminu dreift yfir. Deiginu er svo rúllað í pulsu og snúðarnir skornir í ásættanlega stærð.
Ég myl svo valhnetukjarna yfir snúðana bara svona af því bara en það má náttúrulega sleppa því.
Snúðarnir eru bakaðir í 25 mínútur við 200°C…geggjaðir!


Sunnudagssnúðar með pistasíukremi Haustlægðirnar sigla yfir landið ein af annarri. Það er ekkert betra á stormasömum sunnudegi en að baka, hugleiða, hlusta á ljúfan eldhúsjazz og smátt og smátt fyllist húsið af kanil- og vanilluilm og um leið og síðasta platan kemur úr ofninum hellir maður uppá.
0 notes
Text
Það er gott að grípa í þennan rétt ef maður á óvænt von á gestum í mat. Fljótlegt, einfalt og gengur með alls konar meðlæti.
Þú þarft:
Kjúklingabringur
Ólívur
Fetaostur
Chilli pesto
Beikon
Ég byrja alltaf á að taka lundirnar af bringunum og grilla þær sér…og þá yfirleitt í annarri marinerinu, t.d. teryiaki, bara svona uppá flippið.
Síðan sker ég langsum í hliðarnar á bringunum og bý til lítinn vasa, set ca 1 tsk af chilli pestó, ólívur og fetaost í ,,vasann” og vef svo beikoni utan um til að loka sárinu. Það er svo ljómandi gott að krydda beikonið með einhverju góðu ítölsku kryddi….nú eða smyrja með BBQ-sósu, neinei, segi svona.
Það er ekki verra ef maður getur leyft bringunum að hvíla svona í ca 30 mínútur.

Svo grilla ég þetta fyrst á miklum hita til að loka og fá krispí beikon og svo á minni hita þar til bringurnar eru eldaðar í gegn. Bringurnar verða mjög djúsí þar sem beikonið innsiglar vökvann og pestóið marinerar bringurnar að innan.
Það er fátt betra en að standa útá svölum og grilla í kvöldsólinni 🙂

Fyrir meðlæti finnst mér best að grilla sætar kartöflur, kannski smá maís, og bera svo kalda sósu fram með.
Fullkomið sumargrill!
Fylltar kjúklingabringur vafðar í beikon Það er gott að grípa í þennan rétt ef maður á óvænt von á gestum í mat.
1 note
·
View note
Text
Brokkhólímólí!
Ég datt niður á eitthvað geggjaðasta brokkólípartý sem ég hef upplifað.
Hef alltaf verið hrifinn af brokkólí og blómkáli, það er líka eitthvað svo ofsalega groddalegt að bíta í haus af brokkólí, eitthvað svo barbarískt og fallegt. Eða erum við að tala um spergilkál?? Enn betra!

Þú þarft:
Spergilkál
Chipotle paste
Maukaðan hvítlauk
Smjör
Rifinn piparost
Chilli flögur
Sesamfræ
Salt
Ég set nokkrar…
View On WordPress
0 notes
Text
Haustið er í póstinum og það fær mig til hugsa um matarmiklar súpur, grillað lambalæri, buff með spældu eggi og brúnni sósu og…pæ, ok, bökur, svo við höfum þetta allt rétt.
Þessa uppskrift geri ég reglulega, deigið er svo súper einfalt en ógurlega gott og maður getur eiginlega blandað hverju sem er saman við. Á ensku er þetta crumble pie og virkar þannig að maður mylur deigið í formið…MYLSNUDEIG!
Í deigið þarftu bara:
50 gr hveiti
80 gr gróft haframjöl
125 gr púðursykur
125 gr kalt smjör
Í perupæið þarftu auk þess:
2 perur
1 plötu súkkulaði með saltkaramellufyllingu
Salthnetur
Kanill
Yfirleitt nota ég epli og salthnetur, svona eins og mamma gerir en að þessu sinni átti ég bara perur og notaði þær bara. Það má auðvitað líka nota bæði…og alls konar. Perurnar eru vel sætar og það var fullkomið kombó að nota súkkulaði með saltkaramellufyllingu með.
Ég sker smjörið í litla teninga, set svo allt deigefnið í matvinnsluvél og blitza þar til deigið verður mylsnukennt. Þá hnoða ég það aðeins í höndunum og myl svo yfir ávextina.

Perurnar eru skornar í litla bita og settar í botninn á eldföstu móti, sáldra kanil yfir. Fyrir þá sem vilja fara algjörlega overboard má setja hnetusmjörsklessur á víð og dreif yfir perurnar. Ég brýt svo súkkulaðið í grófa bita og dreifi yfir og svo kemur mylsnudeigið yfir og svo alveg slatti af salthnetum þar yfir (eins mikið og hver vill) og aðeins meiri kanil þar yfir.
Bakan er svo bökuð í ca 40 mín á 200°c. Lyktin verður ærandi eftir svona 15 mínútur!

Ég bar þessa fram með sumarísnum í ár sem inniheldur banana og anananas…trúðu mér þú þarft rótsterkt kaffi með þessu.
Heitt perupæ með saltkaramellusúkkulaði Haustið er í póstinum og það fær mig til hugsa um matarmiklar súpur, grillað lambalæri, buff með spældu eggi og brúnni sósu og...pæ, ok, bökur, svo við höfum þetta allt rétt.
0 notes
Text
Ég er nýkominn úr enn einni Ítalíu reisunni. Þar var mikið drukkið af góðum vínum, spritz drykkjum og ótæpilegt magn af buffala mozzarella innbyrt.
Hitinn fór vel yfir 35°C á tímum og þá var fátt betra í siestunni en að setjast á svalirnar og gæða sér á ískaldri melónu með hádegiskokteilnum.
Ég fékk einn daginn hugljómun, hef líklegast lesið um þetta í einhverju af þeim ótal matartímaritum eða matreiðslubókum sem ég las í ferðinni.
Hér er geggjað svalandi melónusalat sem sómir sér vel sem semi-healthy hádegismatur, frábær eftirréttur eða bara eitthvað fyrir krakkana að narta í.
Þú þarft:
1 melónu eða kantalópu
Hálfa dós af mascarpone osti
2 msk hunang
Lófafylli af pistasíum
Lime safa

Ég skóf úr kantalópunni með ísskeið, það skilur eftir sig skemmtilega áferð. Svo er annar möguleiki á að framreiða réttinn í kantalópu ,,skelinni”.
Mascarpone-osturinn og hunangið er hrært saman og sett í botnin á fallegri skál, melónubitarnir þar ofan á, svo skvettir maður smá lime safa yfir.

Eftir að hafa eytt ca 15 mínútum í að taka utan af pistasíum þá saxa ég þær gróft og dreifi yfir. Ef maður er í hátíðarskapi má svo gluða enn meira hunangi yfir allt heila klabbið.

Vá, svo er þetta svo fallegt og fer vel í sumarhitanum.
Svalandi melónusalat, fullkomið í sumarhitanum! Ég er nýkominn úr enn einni Ítalíu reisunni. Þar var mikið drukkið af góðum vínum, spritz drykkjum og ótæpilegt magn af buffala mozzarella innbyrt.
0 notes
Text
Ég veit að ég hef verið með fögur fyrirheit um ást mína á steikum, beikoni and all that jazz. En undanfarið, veit ekki hvort það sé aldurinn sem færist svona yfir eða hvað, þá kann ég betur og betur að meta góð salöt, grænmetisfæði og annað svoleiðis gúmmelaði.

Rauðrófuborgararnir frá Strong Roots sem fást yfirleitt í Krónunni finnst mér rosa góðir, sætu kartöflurnar frá sama brandi eru líka geggjaðar. Ég get líklegast seint yfirgefið hnetusmjörið og því lauma ég því með í þennan rétt.
Ég nota líka á þennan borgara röstí kartöfluskífu og avocado. Bergbys sætt sinnep (þessi ljósbrúna, ekki þessi gula) og Chimi Churri sósu ásamt smátt söxuðu selleríi sem fer yfir hnetusmjörið.
Þú þarft:
Brioche hamborgarabrauð
Rauðarófu borgara
Röstí kartöfluskífur
Gróft hnetusmjör
Smá olíu
Smátt saxað sellerí
Vel þroskuð avocado
Rauðlaukssultu
Salt, pipar og þurrkaðan hvítlauk
Chimi Churri sósu
Berbys sætt sinnep

Ég pennsla borgarana og kartöfluskífurnar með olíu og set salt, pipar og hvítlaukin á borgarana áður en ég set á grillið. Þegar ég flippa borgurunum í annað sinn set ég væna slummu af hnetusmjöri á þá og loka og leyfi því að bráðna aðeins.

Borgarinn í textaformi frá botni og uppp er einhvern veginn svona:
Brauð
Chimi Churri
Kartöfluskífa
Sinnep
Avocado
Rauðrófubuff
Hnetusmjör
Sellerí
Rauðlaukssulta
Chimi Churri
Brauð
Þetta er alveg hriiikalega bragðgott og ekki verra að bera fram sætar kartöflur eða krullufranskar og þá er í aðalhlutverki trufflumæjóið sem er að trylla heimilið mitt:

Við borðum meira af þessu en við munum nokkurn tíma þora að viðurkenna.
Geggjað stöff!
Rauðrófuborgari með hnetusmjöri og rauðlaukssultu Ég veit að ég hef verið með fögur fyrirheit um ást mína á steikum, beikoni and all that jazz.
0 notes
Text
Panna cotta er drottningin í ítölskum eftirréttum, og úr nógu er að velja.
Þegar maður er svo farin að blanda saman við ítalska heslihnetusúkkulaðinu Nutella, þá er maður komin á annað level. Mér hafði aldrei dottið þetta í hug fyrr en ég fór á veitingastað ítalskrar fjölskyldu í breska bænum Altrincham sem heitir Tre Ciccio.
Staður sem ber ekki mikið með sér að utan en þegar inn er komið fær maður strax einhverja tilfinningu um að þarna sé eitthvað alveg geggjað í gangi. Þar smakkaði ég einmitt Nutella Panna cotta í fyrsta skiptið.
Panna cotta er basically bara soðinn sætur rjómi með smá gelatíni en það er eitthvað alveg himneskt við hann.
Þú þarft:
500 ml rjóma
75gr sykur
1 vanillustöng
2 kanilstangir
2 msk Nutella
2 gelatín blöð
Smá mjólk
Aðferð:
Gelatín blöðin eru lögð í bleyti í mjólk og leyft að mýkjast upp, á meðan er ágætt að skafa innan úr vanillustönginni . Allt hitt er síðan sett saman í pott, hitað upp að suðu, þá lætur maður vanillufræin og stöngina útí ásamt gelatíninu og mjólkinni sem það var í og látið malla í ca 3 mínútur á meðan maður hrærir stöðugtt og passar að að blandan sé mjúk og fín.
Mér finnst fallegt að nota falleg lítil form en þetta má gera á alla vegu. Ég kæli formin og leyfi jöfnunni að kólna aðeins, svo hellir maður í gegnum sigti í formin og leyfir að standa í kæli í 4-5klst.
Svo er geggjað að bera fram með t.d. ristuðum möndlum og kirsuberjasósu, það er svona hátíðarútgáfan.
Nutella Panna cotta Panna cotta er drottningin í ítölskum eftirréttum, og úr nógu er að velja. Þegar maður er svo farin að blanda saman við ítalska heslihnetusúkkulaðinu Nutella, þá er maður komin á annað level.
0 notes
Text
Bláberja muffins með hvítu súkkulaði
Bláberja muffins með hvítu súkkulaði
Ef maður kann að gera grunnuppskrift að muffins eða bollakökum (sem er basically það sama) þá er ótrúlega auðvelt að leika sér með gúmmelaðið sem maður getur bætt útí, og ef maður hittir á réttu blönduna þá getur maður búið til endalausa möguleika af einföldu kruðeríi sem er gott að grípa í með kaffinu.

Grunnuppskriftin mín er svona:
25gr bráðið smjör
1 egg
75gr sykur
1 dós kaffijógúrt
1tsk…
View On WordPress
0 notes
Text
Emilie’s á horni Hverfisgötu og Barónsstígs býður uppá líklegast besta úrval af enskum skonsum sem Reykjavík hefur uppá að bjóða. Hjá Emelie’s, sem er nb frönsk keðja, er hægt að fá allt að 6 tegundir af skonsum á hvejrum morgni sem eru bakaðar í litla ofninum þeirra. Þetta er fullkominn göngutúr fyrir mig eftir morgunsund í Sundhöllinni á leiðinni í vinnuna.
Hér er minn vinkill á skonsurnar.
Þú þarft:
500gr hveiti
3 egg
75gr sykur
30gr lyftiduft
75gr bráðið smjör
3dl rjómi
2 tsk vanilludropar
75gr súkkulaðidropar
2tsk kanill
Öllu nema einu eggi er blandað saman í hrærivél og hnoðað þar til deigið er orðið þétt og með fallega áferð.
Þá er deigið flatt út í ca þumalþykkt og skorið út í ferninga, tígla eða bara það sem hentar ykkar. Engar áhyggjur af þykktinni, það er svo mikið lyftiduft í deiginu að þetta á eftir að rísa vel. Svo eru skonsurnar penslaðar með hrærðu eggi og svo má strá jafnvel kanilsykri yfir. Bakað í 15 mín við 200°C.

Best með miklu smjöri og góðum osti…mmmm.
Enskar skonsur með súkkulaðibitum Emilie's á horni Hverfisgötu og Barónsstígs býður uppá líklegast besta úrval af enskum skonsum sem Reykjavík hefur uppá að bjóða.
0 notes
Text

Ég vildi að ég gæti borðað ost í öll mál, góður vel reyktur cheddar eða baneitraður stilton með púrtvínslögg…nú eða bara lungamjúkur og rjómakenndur camenbert, breytir engu, ég elska þetta stöff!
Ég er fastagestur í Búrinu á Granda, þar fæst allt sem ostapervertar þurfa á að halda.
Ostakex er einhvers konar tilraun til yfirskins af minni hálfu með það að markmiði að draga úr kolvetnisinntöku….aumt, ég veit.

En í þetta kex nota ég Tabasco og nóg af chilli, helst svo mikið að maður brenni kaloríum á meðan maður inbyrðir það.
Þú þarft:
100 gr kalt smjör
100gr hveiti
50 gr rifinn Applewood cheddar
50 gr rifinn parmesan
2 tsk sinnepsduft
Chilli flögur
Ca 1 tsk Tabasco, ekki spara sósuna
1 tsk reykt paprikuduft (sætt)
Salt
1 egg
Sesamfræ
Svo má náttúrulega blanda því saman við sem maður vill. Ef þið leitið að ostakexi í leitarstrengnum á síðunni minni fáið þið pottþétt nokkrar variasjonir. Við þurfum að tala um þennan Applewood ost…hann er ROSALEGUR.
Aðferðin:
Allt nema egg og sesamfræin er sett í matvinnsluvél og blitzað þar til úr verður falleg appelsínugul kúla, þá er hún vafin í matarfilmu og kæld í ca 30 mín í ísskáp.
Deigið er svo flatt út og kringlóttar kökur skornar út, stærð er val hvers og eins, ég nota bara basic smákökujárn sem annars er notað fyrir piparkökugerð. Að lokum pensla ég hrærðu eggi á kökurnar og sáldra sesamfræjum yfir.

Athugið að þetta þarf allt að gerast frekar hratt þar sem deigið er basically bara smjör og ostur og verður að klessu mjög hratt. Svo er kexið bakað í ca 10-12 mínútur við 200°C.

KExið er vel sterkt og bragðmikið og hentar vel með dökkum bjór, Vogaídýfu, meiri osti eða sýrðum rjóma. Geggjað!

Súper einfalt Tabasco ostakex Ég vildi að ég gæti borðað ost í öll mál, góður vel reyktur cheddar eða baneitraður stilton með púrtvínslögg...nú eða bara lungamjúkur og rjómakenndur camenbert, breytir engu, ég elska þetta stöff!
0 notes
Text
Jólapizza með geitaosti
Pizzur eru í mínum huga ómissandi í jólahaldinu og aðventunni. Þegar allt er á milljón, engin hefur tíma fyrir neitt flókið þá er eitthvað fallegt við það að eiga stutta stund saman og skella í nokkrar laufléttar pizzur.

Þessi pizza er með jólaþema, veit ekki af hverju, bara eitthvað við hana sem minnir mig á jólin. Áleggið er rauð epli, hunang, pistasíur, þurrkað chilli og geitaostur. Lyktin…
View On WordPress
0 notes